Innlent

Samþykkja sölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum fyrir 3,5 milljarða

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Hafnarfjörður hefur verið á meðal hluthafa í HS Veitum frá stofnun árið 2008. Fyrirtækið annast sölu og dreifingu á heitu vatni, köldu vatni og dreifingu á raforku á Suðurnesjum, á nokkrum stöðum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Í Hafnarfirði snýr þjónusta fyrirtækisins að dreifingu á rafmagni að því er segir í tilkynningu frá bænum.
Hafnarfjörður hefur verið á meðal hluthafa í HS Veitum frá stofnun árið 2008. Fyrirtækið annast sölu og dreifingu á heitu vatni, köldu vatni og dreifingu á raforku á Suðurnesjum, á nokkrum stöðum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Í Hafnarfirði snýr þjónusta fyrirtækisins að dreifingu á rafmagni að því er segir í tilkynningu frá bænum. Vísir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að selja 15,42% hlut í HS Veitum hf. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Hlutur bæjarins verður seldur fyrir þrjá og hálfan milljarð króna en kaupendur að bréfunum eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarkaupstað nú í kvöld. Undirbúningur að sölu hlutabréfanna hófst með samþykki bæjarráðs í apríl en ákvörðunin hefur sætt talsverðri gagnrýni.

„Hluturinn var settur í opið útboðsferli og sýndu fjölmargir fjárfestar áhuga á hlutabréfunum. Eftir sex mánaða ítarlegt söluferli hefur verið ákveðið að taka tilboði HSV eignarhaldsfélags í hlutinn. Að baki félaginu standa 14 lífeyrissjóðir (90%) auk annarra fagfjárfesta,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fagnar áfanganum. „Vel heppnuð sala á liðlega 15% hlut í HS Veitum er fagnaðarefni fyrir Hafnfirðinga. Gott verð fékkst fyrir hlutinn og mun andvirðið styrkja bæjarsjóð Hafnarfjarðarbæjar verulega til að mæta tekjutapi og efnahagslegum þrengingum vegna Covid-19 faraldursins,“ er haft eftir Rósu í tilkynningunni.

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafa margir hverjir gagnrýnt áformin um sölu bæjarins á hlutabréfum í HS Veitum en fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn hefur til að mynda sagt ákvörðunina fela í sér ógn við almannahagsmuni Hafnfirðinga. Þá hefur oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn jafnframt lýst efasemdum.

Þessu kveðst bæjarstjóri ekki sammála. „Hluturinn í HS Veitum hefur engin áhrif á íbúa í Hafnarfirði en verðlagning á raforkudreifingu er bundin ströngum skilyrðum í raforkulögum. Kaupendur eru að mestu lífeyrissjóðir sem standa að baki yfir helmingi af lífeyriskerfi landsins. Andvirði sölunnar dregur úr lánsfjárþörf Hafnarfjarðarbæjar og þar með afborgunum og vöxtum í framtíðinni og veitir um leið færi á því að sækja fram með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi,“ er ennfremur haft eftir Rósu í tilkynningunni sem send var út í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×