„Það er alltaf hægt að færa rök fyrir góðum kanilsnúðum, sérstaklega í þessu veðri,“ segir matgæðingurinn og þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran. Aðferðina á bak við baksturinn á þessum snúðum er í story á Instagram síðu hennar og er hægt að horfa á það HÉR. Þessi uppskrift gefur 12 til 14 snúða en auðvelt er að tvöfalda hana.
Deigið:
- 1 msk þurrger
- 175 ml mjólk
- 95 g sykur + 1 msk
- 95 g smjör (brætt )
- 1 tsk kanill
- 2 egg
- 600 g hveiti
- 2 tsk vanilludropar
- Salt á hnífsoddi
Aðferð:
Hitið mjólkina, hún á að vera volg. Bætið þurrgeri og 1 matskeið af sykri eða hunangi saman við og hrærið. Setjið viskastykki yfir skálina og látið standa þar til byrjar að freyða í skálinni.
Þegar gerblandan er klár þá bætið þið eggjum, sykri, vanilludropum og smjöri út í og hrærið með hnoðaranum í hrærivélinni.
Því næst fer hveitið, kanill og saltið. Hnoðið deigið þar til það er slétt og fínt, ef ykkur finnst deigið of blautt þá setjið þið smá hveiti saman við.
Hnoðið deigið í tvær til þrjár mínútur með höndunum og setjið síðan deigið aftur í skálina, viskastykki yfir og leyfið því að hefast í klukkustund.

Fyllingin:
- 160 g púðursykur
- 140 g smjör, við stofuhita
- 2 msk kanill
Aðferð:
Þeytið smjörið þar til það er létt og ljós, bætið púðursykrinum saman við og kanil. Þeytið þar til fyllingin er orðin létt í sér.
Þegar deigið hefur náð að tvöfalda stærð sína þá er gott að setja smá hveiti á borðflöt og fletja deigið út, því næst smyrjið þið fyllingunni á deigið og rúllið upp. Skerið deigið í jafn stóra bita og raðið í pappírsklætt eldfast mót. Leyfið snúðunum hefast enn einu sinni í 30 mínútur.
Hitið ofninn í 180°C (blástur) og bakið í 18-20 mínútur. Á meðan snúðarnir eru í ofninum þá er gott að útbúa rjómaostakrem.

Rjómaostakrem
*þetta er stór skammtur, það er trúlega alveg nóg að skipta henni í tvennt og gera helminginn
- 140 g smjör, við stofuhita
- 150 g rjómaostur, við stofuhita
- 250 g flórsykur + meira ef kremið er of blautt
- 2 tsk vanilludropar
Aðferð:
Þeytið smjör og rjómaost saman þar til létt og ljós, mikilvægt að nota vörur sem eru við stofuhita.
Bætið flórsykrinum og vanillu saman við og þeytið áfram, ef ykkur finnst kremið of blautt þá bætið þið meiri flórsykri saman við.
Leyfið snúðunum að kólna örlítið þegar þeir koma út úr ofninum.. ég beið í ca 30 sekúndur en kannski er gott að bíða lengur, ég hef enga þolinmæði.
Smyrjið kreminu á snúðana og berið strax fram. Ylvolga og dásamlega! Ég bætti við oreo mulningi yfir kremið í lokin.
Þið getið séð nákvæmar leiðbeiningar á Instagramminu Eva Laufey Kjaran.