James: Treystu á mig þegar enginn annar gerði það Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. nóvember 2020 11:00 James Rodriguez og Carlo Ancelotti. vísir/Getty
Kólumbíski miðjumaðurinn James Rodriguez segir að hann verði Everton ævinlega þakklátur fyrir að hafa gefið sér tækifæri í sumar. James sló í gegn á heimsmeistaramótinu 2014 en síðastliðið sumar fékk hann ekki framlengingu á samningi sínum við spænska stórveldið Real Madrid en hann var meðal annars lánaður til Bayern Munchen í tvö tímabil af tíma sínum hjá Real. „Everton og Ancelotti treystu á mig þegar enginn annar gerði það. Ég verð þessu félagi og Carlo ævinlega þakklátur fyrir það. Þess vegna vil ég gera allt sem ég get í hverjum einasta leik,“ segir James. Hann hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í upphafi móts og gert Everton kleift að berjast í toppbaráttunni. Þessi 29 ára gamli Kólumbíumaður telur Everton geta keppt við bestu lið deildarinnar undir stjórn hins reynslumikla Carlo Ancelotti. „Hann er mjög rólegur. Hann veit hvernig á að koma fram við leikmenn og hann nær því besta út úr okkur. Það er ástæðan fyrir því að hann hefur unnið fyrir öll þessu frábæru félög,“ segir James um stjóra sinn og er sannfærður um að liðið geti náð inn í Meistaradeildina á næstu leiktíð. „Ég held að við höfum það sem þarf til að komast þangað. Carlo Ancelotti er kóngur í Evrópuboltanum.“ James verður í eldlínunni í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem Everton fær Manchester United í heimsókn.
Enski boltinn Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira