Innlent

Átta greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Staðfest kórónuveirusmit Íslands frá upphafi heimsfaraldursins nálgast nú 5.200.
Staðfest kórónuveirusmit Íslands frá upphafi heimsfaraldursins nálgast nú 5.200. Vísir/Vilhelm

Átta greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Ekki hafa svo fáir greinst á einum degi síðan 14. september. Tveir af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví, eða fjórðungur. Sex þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 75 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru 61 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. Í gær voru 63 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.

Tveir greindust á landamærum þar sem niðurstöðu mótefnamælingar beðið.

447 manns eru nú í einangrun, samanborið við 472 í gær. Þá eru 883 í sóttkví í dag, samanborið við 992 í gær.

Af þeim átta sem greindust innanlands í gær greindust allir eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 87,8 en var 106,1 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,4, en var 10,6 í gær.

Nú hafa 5.170 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir ennfremur að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 25 nú látnir.

Alls voru tekin 708 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 406 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 105 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×