Héraðsdómur dæmdi ÍR til að greiða Sigurði tæpar tvær milljónir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2020 16:20 Sigurður Gunnar Þorsteinsson í leik með ÍR gegn KR í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn vorið 2019. Vísir/Vilhelm
Körfuknattleiksdeild ÍR þarf að greiða Sigurði Gunnari Þorsteinssyni tæpar tvær milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna launa. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sigurður stefndi ÍR vegna launa sem hann taldi sig eiga inni hjá félaginu. Haustið 2019 skrifaði Sigurður undir tveggja ára samning við ÍR eftir stutta dvöl í Frakklandi. Hann sleit krossband í hné eftir nokkrar mínútur í fyrsta leik sínum með ÍR, gegn Þór á Akureyri 25. október 2019, og lék ekkert meira með á tímabilinu. Samningi Sigurðar við ÍR var rift síðasta vor en félagið ákvað að greiða honum ekki laun þar sem það taldi hann ekki hafa uppfyllt sinn hluta samningsins. Sigurður höfðaði mál á hendur ÍR og krafði félagið um að greiða sér 1.866.000 krónur auk dráttarvaxta og greiðslu málskostnaðar. Dómurinn féllst á kröfur Sigurðar en mat hans var að meiðsli leikmannsins hafi ekki verið réttmæt ástæða til að segja samningi hans upp. Í dómnum kemur fram að áhætta vegna slysa í samningsbundnum körfuboltaleikjum hvíli á félaginu, ekki leikmanninum sjálfum. ÍR þarf því að greiða Sigurði tæpar tvær milljónir í vangoldin laun auk dráttarvaxta og 800 þúsund krónur í málskostnað. ÍR getur áfrýjað niðurstöðu héraðsdóms til Landsréttar. Dóminn í heild sinni má lesa með því að smella hér.
Subway-deild karla ÍR Dómsmál Kjaramál Sigurður Gunnar Þorsteinsson gegn ÍR Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti Efaðist en lagði allt í sölurnar fyrir EM: „Mörg gleðitár“ Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti EM í dag: Ánægjuleg truflun og þungu fargi létt Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira