Innlent

Fjórir greindust með kórónu­veiruna innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Meirihluti þeirra sem eru í einangrun eða í sóttkví vegna kórónuveirunnar eru á höfuðborgarsvæðinu.
Meirihluti þeirra sem eru í einangrun eða í sóttkví vegna kórónuveirunnar eru á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Tveir þeirra voru ekki í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Nú eru 52 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 55 á sjúkrahúsi og þar af fjórir á gjörgæslu.

Einn greindist smitaður á landamærum samkvæmt uppfærðum tölum og er niðurstöðu mótefnamælingar þar beðið. 

233 manns eru nú í einangrun, samanborið við 267 í gær. Þá eru 348 í sóttkví í dag, samanborið við 384 í gær.

Af þeim fjórum sem greindust innanlands í gær greindust allir eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 50,7 en var 56,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,5, en var 7,9 í gær.

Nú hafa 5.231 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir.

Sé litið til einstakra landshluta má sjá að enn eru flestir í einangrun og í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu. Fólki í einangrun á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað milli daga, fer úr 181 í 158. Fólki í sóttkví fer úr 275 í 232. Athygli vekur að fólki í sóttkví fjölgar á Austurlandi og er komið í 38 eftir smitið sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum.

Alls voru tekin 735 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 205 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru sextán sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×