Braut á bestu vinkonu sinni á Vestfjörðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. nóvember 2020 19:11 Lögreglustöðin á Ísafirði. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi til fimm ára fyrir að nauðga konu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Vestfjarða í dag. Fór karlmaðurinn án samþykkis með hönd sína inn fyrir buxnastreng konunnar og stakk fingri inn í leggöng hennar á meðan hún var sofandi. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í bætur. Ótrúverðug frásögn af náttklæðnaði Karlmaðurinn kom óboðinn í heimsókn til vinkonu sinnar um miðja aðfaranótt sunnudagsins 8. september í fyrra og hún hleypti honum inn. Eftir að hafa spjallað við systur sína í þó nokkra stund lagðist hún upp í rúm þar sem vinur hennar lá. Sagðist konan hafa verið klædd síðum náttbuxum, hálferma nátttreyju og þykkum sokkum. Framburður systur, læknis og lögreglumanns studdu þau orð konunnar. Karlmaðurinn sagði hana hafa verið í nærbuxum og silkináttkjól einum klæða. Dómurinn taldi þann framburð svo ótrúverðugan að á honum yrði ekki byggt. Þar sem konan hefði ekki boðið karlmanninum heim og með hliðsjón af hvernig hún var klædd þótti héraðsdómi ekkert hafa fram komið sem hefði gefið karlmanninum tilefni til að ætla að til kynferðislegra athafna myndi koma þegar hún lagðist upp í rúm til hans. Frásögn þeirra beggja um vinasamband þeirra styddi þessa ályktun héraðsdóms. Öruggur framburður konunnar Héraðsdómur leit svo til þess hvort aðstæður hefðu breyst í framhaldinu eftir að hún lagðist upp í rúm til karlsins. Hvort með réttu mætti ætla að kynferðislegur áhugi hefði kviknað hjá konunni og hún samþykk og viljug til kynferðislegra athafna. Konan var stöðug og örugg í þeim framburði að þau hefðu hlustað á tónlist og spjallað í um fimm mínútur. Hún næst kveikt á rólegum hálftíma löngum lagalista, boðið góða nótt, snúið sér frá karlmanninum og sofnað stuttu síðar. Líkamar þeirra hefðu ekki snerst fram til þess tíma. Þegar hún vaknaði hafi lagalistinn verið búinn, karlmaðurinn legið þétt upp við og nánast ofan á hluta líkama hennar, verið að anda eða stynja í eyra hennar og með fingur inni í leggöngum hennar. Engin snerting í aðdraganda brotsins Framburður ákærða var að einhverju leyti ólíkur hjá lögreglu í fyrri og seinni skýrslugjöf. Hann hefði hins vegar talið áhuga hjá konunni til kynmaka en svo hætt þegar honum varð ljóst að svo væri ekki. Við mat dómsins á trúverðugleika hans leit dómurinn til þess að karlmaðurinn hélt því aldrei fram að konan hefði farið um hann höndum í rúminu, þau talað saman um kynferðislegt samneyti eða kysst hvort annað. Þá lægi fyrir ótrúverðug frásögn um náttklæðnað konunnar. Taldi dómurinn þetta draga verulega úr líkindum að konan hefði haft kynferðislegan áhuga á karlmanninum. Þá benti ekkert til þess að konan hefði gefið til kynna að hún væri samþykk kynferðislegum athöfnum. Átti sér einskis ills von Karlinn og konan eru á þrítugsaldri og voru trúnaðarvinir. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að konan leit á karlinn sem trúnaðarvin, treysti í hvívetna og átti sér einskis ills von þegar hún leyfði honum að gista í hjónarúmi hennar. Karlmaðurinn hefði rofið þetta traust. Þótt hann hefði óskað eftir að samband þeirra yrði annað og meira en náið vinasamband átti hann engan rétt á að yfirfæra eigin þrár yfir í löngun konunnar til kynferðislegs samneytis við hann. Ljóst væri að framferði hans hefði valdið verulegri vanlíðan. Þótti refsing hæfileg átján mánaða fangelsi. 1,5 milljónir króna í bætur Dómurinn leit til þess að brotið hefði markað djúp spor í sálarlíf beggja og valdið þeim áfalli. Vinskapur þeirra hefði verið náinn og báðum dýrmætur. Bæði voru gersamlega niðurbrotin við skýrslugjöf fyrir dómi. Taldi dómurinn því verulegar efasemdir á að afplánun refsingar gæti hagað sérstökum hagsmunum konunnar eða almennum hagsmunum. Var dómurinn því skilorðsbundinn, til fimm ára. Var karlmaðurinn dæmdur til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur enda hefði brotið valdið henni verulegri vanlíðan sem ekki verður rakin frekar hér.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Fleiri fréttir Fékk afa sinn með sér á skólabekk Lögreguaðgerð gegn áfengissölu í Kópavogi Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Sjá meira