Veðurstofa Íslands varar við hríðarveðri, stormi og éljum á stærstum hluta landsins í dag og fram á morgundaginn.
Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi fyrir nánast allt landið; þau landsvæði sem sleppa við viðvaranir í þetta sinn eru Suðausturland, Austfirðir, Austurland að Glettingi og Norðurland eystra.
Þegar þetta er skrifað er reyndar gul viðvörun í gildi þar vegna sunnan storms en hún fellur úr gildi klukkan 8 nú í morgunsárið.
Verður einna verst á Reykjanesi
Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að meðalvindur geti farið í allt að 25 metra á sekúndu og í hviðum upp í allt að 38 til 40 metra á sekúndu. Veðrið verði einna verst á Reykjanesi og á svæðinu sem nær frá Þorlákshöfn og allt norður á Snæfellsnes.
Þá bendir hann á að veðrinu geti fylgt há sjávarstaða og sjógangur. Þannig megi búast við hárri sjávarstöðu í eftirmiðdaginn og mikilli ölduhæð vestur og suðvestur af landinu.
Gul viðvörun vegna suðvestanhríðar er í gildi á Faxaflóa frá 9 til 13 í dag. Síðan tekur við appelsínugul viðvörun á svæðinu sem gildir frá 13 til 23 í kvöld:
„Suðvestan 18-25 m/s með éljagangi. Mjög lítið skyggni í éljum og því varasöm akstursskilyrði. Einnig má búast við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Það sama er uppi á teningnum á Breiðafirði. Þar er gul viðvörun vegna suðvestan hvassviðris og élja frá klukkan 9 til 12. Svo tekur við appelsínugul viðvörun til klukkan 23 í kvöld þar sem varað er við suðvestan stormi eða roki og éljum:
„Búist er við suðvestan 18-25 m/s og talsverðum eða miklum éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig má búast við miklu hvassviðri í éljahryðjunum.“
Mjög takmarkað skyggni á höfuðborgarsvæðinu
„Það verður hvasst og ennþá hvassara í éljunum sjálfum. Þetta er allt að keyrast í gang og ætli þetta verði ekki orðið ansi leiðinlegt um hádegið,“ segir Páll í samtali við Vísi.
Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun vegna suðvestanhríðar frá 9 í dag til 5 í fyrramálið. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu og mjög dimmum éljum. Varað er við hálku á götum og gangstéttum og mjög takmörkuðu skyggni á köflum sem geti valdið vandræðum í umferðinni.
Einnig er varað við suðvestanhríð á Suðurlandi með gulri viðvörun frá 12 í dag til 8 í fyrramálið:
„Suðvestan 15-23 m/s með éljagangi. Mjög lítið skyggni í éljum og því varasöm akstursskilyrði. Búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.“
Á Vestfjörðum er gul viðvörun í gildi frá 10 í dag til 3 í nótt. Þar er búist við 18-25 metrum á sekúndu og talsverðum eða miklum éljagangi í suðvestan stormi eða roki og éljum.
Mikið hvassviðri í éljahryðjum
Þá má búast við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig er spáð miklu hvassviðri í éljahryðjum.
Gul viðvörun er í gildi frá 12 í dag til 8 í fyrramálið fyrir Strandir og Norðurland vestra vegna suðvestan storms eða roks og élja:
„Búist er við suðvestan 18-25 og talsverðum eða miklum éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni og ört versnandi akstursskilyrðum. Einnig má búast við miklu hvassviðri í éljahryðjum.“
Á miðhálendinu gengur gul viðvörun í gildi klukkan 14 í dag og rennur út klukkan 10 í fyrramálið. Þar er spáð suðvestan stormi eða roki og éljum, 18-25 metrum á sekúndu, talsverðum éljagangi og lélegu skyggni.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Veðurstofunnar. Hér má lesa um viðvaranir sem eru í gildi og hér má nálgast staðaspár. Þá er einnig vert að benda á vef Vegagerðarinnar þar sem fylgjast má með færð á vegum.
Fréttin hefur verið uppfærð.