Erlent

Segja þriggja fjölskyldna samkomur munu leiða til fleiri dauðsfalla

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bresk stjórnvöld hafa þráast við að viðhafa hertar reglur yfir jól.
Bresk stjórnvöld hafa þráast við að viðhafa hertar reglur yfir jól. epa/Andy Rain

Tvö af áhrifamestu heilbrigðistímaritum Bretlands hafa sameinast um leiðara í annað sinn í meira en hundrað ár og varað við því að ef stjórnvöld herða ekki aðgerðir yfir jól, frekar en að aflétta þeim, muni ástandið verða heilbrigðiskerfinu ofviða.

Í ritstjórnargreininni segir að margir muni deyja ef stjórnvöld halda óbreyttri stefnu og heimila þremur fjölskyldum að hittast yfir fimm daga, líkt og áætlanir gera ráð fyrir.

64.402 hafa látist af völdum Covid-19 í Bretlandi og tilkynnt var í gær að Lundúnir hefðu verið færðar upp á hæsta viðbúnaðarstig vegna aukins fjölda greindra.

Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, hefur einnig kallað eftir því að stjórnvöld endurskoði þær reglur sem eiga að gilda yfir jólin en ráðherrar hafa hingað til gert lítið úr áköllum þess efnis og sagt að það sé undir einstaklingum komið að hegða sér með ábyrgum hætti.

Aukinn fjöldi smita komi verst niður á öðrum sjúklingum

British Medical Journal og Health Service Journal segja að Bretar ættu að fara að fordæmi Þjóðverja, Ítala og Hollendinga, sem hafa nýtilkynnt um hertar aðgerðir. Þeir sem skrifa fyrir tímaritin segja að öðrum kosti muni heilbrigðistþjónustan standa frammi fyrir því eftir jól að fresta öllum valkvæðum aðgerðum eða bugast undan þunga álagsins vegna Covid-19.

„Þeir sem þjást af öðrum sjúkdómum munu að öllum líkindum verða fyrir mestum áhrifum vegna aukins fjölda Covid tilvika,“ segja þeir meðal annars.

Þá segir í greininni að stjórnvöld hefðu verið sein til að fyrirskipa takmarkanir í vor og aftur í haust og að peningum hefði verið sóað í gallað rakningakerfi.

„[Stjórnvöld] ættu að snúa skyndiákvörðun sinni að leyfa einstaklingum af ólíkum heimilum að hittast og framlengja þess í stað viðvörunarkerfið yfir á hið fimm daga jólatímabil til þess að ná fjölda tilfella niður áður en líkleg þriðja bylgja gengur yfir.“

Steve Barcley, undirráðherra í fjármálaráðuneytinu, sagði hins vegar í samtali við útvarpsstöðina LBC að um væri að ræða erfitt tímabil og að stjórnvöld vildu ekki refsa fjölskyldum fyrir að koma saman á jólum.

Reuters greindi frá.


Tengdar fréttir

Nýtt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum

Heilbrigðisráðherra Breta, Matt Hancock, sagði frá því í gær að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 hefði fundist í landinu. Fleiri en þúsund tilvik hafa greinst, flest í suðurhluta Bretlands.

Öllum skólum og flestum verslunum í Hollandi lokað

Yfirvöld í Hollandi hafa boðað hertari aðgerðir til þess að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Þetta verður í annað sinn sem svo harðar aðgerðir eru teknar í gildi en nú verður öllum skólum og verslunum lokað í minnst fimm vikur.

Jóla­sveinn smitaði mikinn fjölda á belgísku hjúkrunar­heimili

61 íbúar og fjórtán starfsmenn á hjúkrunarheimili í bænum Mol fyrir utan Antwerpen í Belgíu hafa nú greinst með kórónuveiruna. Grunur er um að rekja megi smitin til manns sem ráðinn var til að mæta í jólasveinabúningi til að koma íbúum í jólaskap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×