Innlent

Sjö greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Fimm þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki.
Fimm þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. Vísir/Vilhelm

Sjö greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Fimm þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 29 eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 34 á sjúkrahúsi og þar af fjórir á gjörgæslu.

Fjórir greindust smitaðir á landamærum – eitt virkt í fyrri landamæraskimun og tvö í seinni landamæraskimun. Þá er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum eins.

141 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 136 í gær. Þá eru 552 í sóttkví í dag, samanborið við 404 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim sjö sem greindust í gær greindust allir eftir svokallaða einkennasýnatöku.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 28,9 en var 28,9 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 15,3, en var 13,9 í gær.

Alls hafa 5.656 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 779 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 378 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×