Arteta farinn að hljóma svolítið eins og Arnar Gunnlaugs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2020 08:31 Mikel Arteta og Arnar Gunnlaugsson nota báðir tölfræðina til að sýna að liðin þeirra eru að spila mun betur en úrslitin gefa til kynna. Samsett/Hulda Margrét&EPA Þetta hafa verið erfiðir síðustu dagar fyrir knattspyrnustjóra Arsenal en Mikel Arteta segir að tölfræðin sé með Arsenal þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki dottið með liðinu. Arsenal er komið niður í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir aðeins einn sigur í síðustu tíu deildarleikjum. Arteta segir samt að liðsandinn hjá Arsenal sé enn góður og að úrslit síðustu leikja séu hreinlega ótrúleg þegar gluggaði er í tölurnar. Arsenal hefur tapað 2-1 á móti Everton, 1-0 á móti Burnley og 2-0 á móti Tottenham í síðustu þremur leikjum sínum. Tölfræðingar Arsenal hafa reiknað út sigurlíkur Arsenal í leikjunum út frá mörgum tölfræðiþáttum eins og sköpuðum færum, tíma með boltann og fleira en þeir hafa síðan borið það saman við tölfræðigrunn ensku úrvalsdeildarinnar. Mikel Arteta says he accepts responsibility for Arsenal's poor form, but believes the club's in-house statistics show they have been victims of misfortune this season.— Sky Sports (@SkySports) December 22, 2020 „Á síðasta ári þá unnum við Everton á Emirates þegar við höfðum aðeins 25 prósent líkur á því að vinna. Um síðustu helgi voru 67 prósent líkur á okkar sigri samkvæmt samanburði við sögu deildarinnar. Það voru aðeins níu prósent líkur á tapi og við töpuðum,“ sagði Mikel Arteta. „Það voru þrjú prósent líkur á tapi á móti Burnley og við töpuðum. Það voru sjö prósent líkur á tapi á móti Tottenham og við töpuðum,“ sagði Arteta. „Það er ekki nóg að skila frammistöðu inn á vellinum því hlutirnir þurfa líka að falla með þér og eins og er þá eru þeir ekki að gera það,“ sagði Mikel Arteta. XG-tölfræðin komst í umræðuna í Pepsi Max deildinni í sumar og það var einkum einn þjálfari sem hélt henni mikið á lofti. Arteta er því farinn að hljóma svolítið eins og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem hefur varið slakt gengi og slæm úrslit síns liðs með því að benda á það að tölfræðin sýni að Víkingsliðið hans hafi átt miklu meira skilið úr sínum leikjum. Arsenal have already planned for the doomsday scenario of relegation from the Premier League. @Matt_Law_DT reports https://t.co/z8jujiJQt3— Telegraph Football (@TeleFootball) December 21, 2020 Arteta og Arnar eiga það líka sameiginlega að hafa gert liðið sitt óvænt að bikarmeisturum á sínu fyrsta tímabilið og að hlutirnir hafi síðan gengið illa í deildinni á næsta tímabili á eftir þrátt fyrir miklar væntingar. Arsenal hefur bæði unnið og tapað leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur þrátt fyrir að XG hafi bent til annarra úrslita. Arsenal var 1,11 - 2,8 undir í XG á móti West Ham en vann leikinn og var síðan 0,4 - 1,04 undir í XG á móti Manchester á Old Trafford en vann engu að síður. Arsenal tapaði hins vegar á móti Liverpool á Anfield þrátt fyrir að vera 2,71 - 1,26 yfir í XG og sömu sögu er að segja af tapleik á móti Manchester City á Ethiad þar sem Arsenal liðið var 1,3 - 0,9 yfir í XG. Næsti leikur Arsenal liðsins er einmitt í kvöld á móti Manchester City í enska deildabikarnum en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin klukkan 19.50. Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Enski boltinn Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Arnar Gunnlaugs: Klárt mál að sumir leikmenn skulda mörk Arnar var ágætlega sáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við HK. Hann segir þó að það sé farið að leggjast á sálina á mönnum að ná ekki í þrjú stig. 21. september 2020 23:05 Víkingar vonbrigði tímabilsins: „Fór einhvern veginn allt til fjandans“ Arnar Gunnlaugsson var sammála Pepsi Max Stúkunni að Víkingar væru vonbrigði tímabilsins í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar. 9. nóvember 2020 21:45 Segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild Þorkell Máni Pétursson segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild karla í fótbolta þetta árið. Annars væru þeir í bullandi fallbaráttu. 6. október 2020 20:31 Arnar um að Kári verði áfram: Jákvætt fyrir mig, klúbbinn og hann sjálfan Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga. 4. desember 2020 22:16 Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Enski boltinn „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Fótbolti Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Fleiri fréttir Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti Sjá meira
Arsenal er komið niður í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir aðeins einn sigur í síðustu tíu deildarleikjum. Arteta segir samt að liðsandinn hjá Arsenal sé enn góður og að úrslit síðustu leikja séu hreinlega ótrúleg þegar gluggaði er í tölurnar. Arsenal hefur tapað 2-1 á móti Everton, 1-0 á móti Burnley og 2-0 á móti Tottenham í síðustu þremur leikjum sínum. Tölfræðingar Arsenal hafa reiknað út sigurlíkur Arsenal í leikjunum út frá mörgum tölfræðiþáttum eins og sköpuðum færum, tíma með boltann og fleira en þeir hafa síðan borið það saman við tölfræðigrunn ensku úrvalsdeildarinnar. Mikel Arteta says he accepts responsibility for Arsenal's poor form, but believes the club's in-house statistics show they have been victims of misfortune this season.— Sky Sports (@SkySports) December 22, 2020 „Á síðasta ári þá unnum við Everton á Emirates þegar við höfðum aðeins 25 prósent líkur á því að vinna. Um síðustu helgi voru 67 prósent líkur á okkar sigri samkvæmt samanburði við sögu deildarinnar. Það voru aðeins níu prósent líkur á tapi og við töpuðum,“ sagði Mikel Arteta. „Það voru þrjú prósent líkur á tapi á móti Burnley og við töpuðum. Það voru sjö prósent líkur á tapi á móti Tottenham og við töpuðum,“ sagði Arteta. „Það er ekki nóg að skila frammistöðu inn á vellinum því hlutirnir þurfa líka að falla með þér og eins og er þá eru þeir ekki að gera það,“ sagði Mikel Arteta. XG-tölfræðin komst í umræðuna í Pepsi Max deildinni í sumar og það var einkum einn þjálfari sem hélt henni mikið á lofti. Arteta er því farinn að hljóma svolítið eins og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem hefur varið slakt gengi og slæm úrslit síns liðs með því að benda á það að tölfræðin sýni að Víkingsliðið hans hafi átt miklu meira skilið úr sínum leikjum. Arsenal have already planned for the doomsday scenario of relegation from the Premier League. @Matt_Law_DT reports https://t.co/z8jujiJQt3— Telegraph Football (@TeleFootball) December 21, 2020 Arteta og Arnar eiga það líka sameiginlega að hafa gert liðið sitt óvænt að bikarmeisturum á sínu fyrsta tímabilið og að hlutirnir hafi síðan gengið illa í deildinni á næsta tímabili á eftir þrátt fyrir miklar væntingar. Arsenal hefur bæði unnið og tapað leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur þrátt fyrir að XG hafi bent til annarra úrslita. Arsenal var 1,11 - 2,8 undir í XG á móti West Ham en vann leikinn og var síðan 0,4 - 1,04 undir í XG á móti Manchester á Old Trafford en vann engu að síður. Arsenal tapaði hins vegar á móti Liverpool á Anfield þrátt fyrir að vera 2,71 - 1,26 yfir í XG og sömu sögu er að segja af tapleik á móti Manchester City á Ethiad þar sem Arsenal liðið var 1,3 - 0,9 yfir í XG. Næsti leikur Arsenal liðsins er einmitt í kvöld á móti Manchester City í enska deildabikarnum en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin klukkan 19.50. Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Enski boltinn Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Arnar Gunnlaugs: Klárt mál að sumir leikmenn skulda mörk Arnar var ágætlega sáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við HK. Hann segir þó að það sé farið að leggjast á sálina á mönnum að ná ekki í þrjú stig. 21. september 2020 23:05 Víkingar vonbrigði tímabilsins: „Fór einhvern veginn allt til fjandans“ Arnar Gunnlaugsson var sammála Pepsi Max Stúkunni að Víkingar væru vonbrigði tímabilsins í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar. 9. nóvember 2020 21:45 Segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild Þorkell Máni Pétursson segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild karla í fótbolta þetta árið. Annars væru þeir í bullandi fallbaráttu. 6. október 2020 20:31 Arnar um að Kári verði áfram: Jákvætt fyrir mig, klúbbinn og hann sjálfan Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga. 4. desember 2020 22:16 Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Enski boltinn „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Fótbolti Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Fleiri fréttir Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti Sjá meira
Arnar Gunnlaugs: Klárt mál að sumir leikmenn skulda mörk Arnar var ágætlega sáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við HK. Hann segir þó að það sé farið að leggjast á sálina á mönnum að ná ekki í þrjú stig. 21. september 2020 23:05
Víkingar vonbrigði tímabilsins: „Fór einhvern veginn allt til fjandans“ Arnar Gunnlaugsson var sammála Pepsi Max Stúkunni að Víkingar væru vonbrigði tímabilsins í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar. 9. nóvember 2020 21:45
Segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild Þorkell Máni Pétursson segir að Víkingar geti þakkað guði fyrir að Grótta og Fjölnir séu í efstu deild karla í fótbolta þetta árið. Annars væru þeir í bullandi fallbaráttu. 6. október 2020 20:31
Arnar um að Kári verði áfram: Jákvætt fyrir mig, klúbbinn og hann sjálfan Miðvörðurinn Kári Árnason skrifaði undir nýjan samning við Víking í dag. Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Kára sem og Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga. 4. desember 2020 22:16