Heilbrigðisráðuneytið hefur frá og með 4. maí næstkomandi veitt Strætó undanþágu frá fjarlægðartakmörkunum, tveggja metra reglunni, að því leyti að miða hámarksfjölda fólks í vögnum við þrjátíu manns.
Þá eru ítrekuð þau tilmæli að viðskiptavinir Strætó sýni varkárni í samskiptum og umgengni, þvoi hendur og spritti reglulega, hósti og hnerri í olnbogabót og takmarki snertingar á snertifleti. Þá á alls ekki að ferðast með Strætó ef grunur leikur á smiti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó en þar segir jafnframt:
„Frá og með 4. maí næstkomandi mun Strætó auka tíðnina á leið 1 á annatímum. Leiðin mun aka á 15 mínútna fresti milli klukkan 06:35-08:35 á morgnana og milli klukkan 15:12-17:12 síðdegis.
Framhurð strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verður enn lokuð og farþegar munu áfram ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins. Innra rými strætisvagnanna verður áfram skipt upp í tvo hluta. Borði er strengdur yfir fremsta hluta vagnanna til þess aðskilja svæði vagnstjóra og svæði farþega. Fargjöld verða greidd í vagninum með því að halda Strætókorti eða Strætóappinu á lofti í átt að vagnstjóra.
Vert er að benda sérstaklega á að vegna fjöldatakmarkana verður ekki unnt að taka á móti leik- og grunnskólahópum í vagna Strætó. Hópa- og tómstundakort verða því ekki í gildi á meðan fjarlægðartakmarkanir eru til staðar.
Aukavagnar munu fylgja eftirtöldum ferðum frá og með 4. maí:
Leið 6 – kl. 7:36 frá Ártúni í átt að Hlemmi.
Leið 3 – kl. 7:21 frá Mjódd í átt að Hlemmi.
Leið 3 – kl. 7:51 frá Mjódd í átt að Hlemmi.
Leið 12 – kl. 07:07 frá Breiðhöfða/Ártúni í átt að Skeljanesi
Leið 12 – kl. 07:31 frá Hlemmi í átt að Mjódd
Leið 12 – kl. 07:56 frá Mjódd í átt að Hlemmi
Leið 15 – kl. 07:01 frá Flyðrugranda í átt að Reykjavegi
Leið 15 – kl. 07:45 frá Reykjavegi í átt að Ártúni
Síðdegis verða aukavagnar til staðar á bakvakt og verða þeir sendir inn á leiðir þar sem álag er mikið.
Peningar eða farmiðar
Við mælum með að flestir viðskiptavinir noti strætókort eða strætóappið til þess að fækka snertiflötum um borð í vagninum. Þeir sem þurfa að greiða fyrir farið með pening eða farmiðum geta sett fargjaldið ofan í bráðbirgðabauka sem eru til staðar í hluta vagnaflotans.
Það verða engir skiptimiðar í boði á meðan rými vagnanna er skipt í tvennt. Þeir farþegar sem ætla að skipta um vagn skulu bíða með að setja pening eða miða í baukinn þar til komið er um borð í síðasta vagn ferðarinnar. Það nægir fyrir farþega með pening eða farmiða að láta vagnstjórann vita að þeir ætli sér að skipta um vagn.“