Fjallað er um raunir feðganna á vef breska ríkisútvarpsins en samanburður BBC á ljósmyndunum sem feðgarnir tóku sýna hvaða áhrif hlýnun hefur haft á jökulinn.
„Það er mikið reiðarslag fyrir mig að sjá þetta landslag breytast svona mikið á einungis fáum áratugum,“ segir Kieran Baxter, sem starfar við Háskólann í Dundee, í samtali við BBC.
Hann hefur á síðustu árum skoðað þróun nokkurra íslenskra jökla sem hluta af verkefni sem hann vann í samvinnu við Háskóla Íslands og Veðurstofuna. Þá lét hann útbúa þrívíddarmódel til að sýna breytingarnar með myndrænum hætti.
Fram kom árið 2019 að Skaftafellsjökull hopi um 50 til 100 metra á ári og hafi hopað um 850 metra frá árinu 1995. Um er að ræða skriðjökull sem fellur frá suðurhluta Vatnajökuls.

Umfjöllun BBC er hluti af mánaðarlegri greinaröð sem skoðar hvernig jörðin er að breytast með hlýnandi loftslagi.
„Oft er umfang loftslagskrísunnar að miklu leyti ógreinilegt með berum augum en hér sjáum við greinilega alvarleika stöðunnar sem hefur áhrif á alla plánetuna,“ segir Baxter í samtali við BBC en jöklar heimsins eru taldir vera ein skýrasta birtingarmynd þess að loftslagið sé að taka breytingum.
Ein mesta rýrnun jökla frá upphafi mælinga
Veðurstofa Íslands greindi frá því í maí síðastliðnum að rýrnun jökla árið 2019 hafi verið ein sú mesta frá því mælingar hófust.
„Jöklar á Íslandi hafa hopað hratt í um aldarfjórðung og er rýrnun þeirra einhver helsta afleiðing og skýrasti vitnisburður hlýnandi loftslags hérlendis,“ sagði í samantekt Veðurstofunnar.
Hefur flatarmál íslenskra jökla minnkað um það bil 800 ferkílómetra frá árinu 2000 og tæplega 2.200 ferkílómetra frá lokum 19. aldar þegar jöklarnir náðu mestu útbreiðslu síðan land byggðist.
Síðustu árin hefur heildarflatarmál jökla minnkað um í kringum 40 ferkílómetra árlega að meðaltali, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar, Jarðvísindastofnunar Íslands og Landsvirkjunar.
Hraðast hörfar Breiðamerkurjökull eða milli 150 og 400 metra árið 2019. Þar hefur áhrif að jökulinn gengur fram í Jökulsárlón þar sem brotnar síðan af honum og ísstykkin fljóta upp.
Fréttin hefur verið uppfærð: Í fyrri útgáfu kom fram að talið væri að Skaftafellsjökull hafi rýrnað um 400 ferkílómetra frá árinu 1989 og vísað til fréttar BBC . Sú tala er röng að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings og Snævars Guðmundssonar, sviðsstjóra Náttúrustofu Suðausturlands, og hefur sú staðhæfing því verið fjarlægð. Þar að auki var aðalmynd fréttarinnar ekki af Skaftafellsjökli heldur Skálafellsjökli en þar var byggt á röngum merkingum Háskólans í Dundee.