Innlent

Segir loftslagsmarkmið Íslands prúttuð niður

Sunna Sæmundsdóttir skrifar

Þingmaður Pírata segir loftslagsmarkmið Íslands hafa verið prúttuð niður og vill að stjórnvöld setji sér sjálfstæð markmið umfram málamiðlanir við Evrópusambandið.

Ísland var þar til í dag eitt örfárra Evrópuríkja sem átti etir að skila uppfærðum landsmarkmiðum í loftslagsmálum til Sameinuðu þjóðanna. Í dag birtist plaggið, sem stjórnvöld kynntu þó í desember, á vef loftslagssamningsins. Sama dag og sérstök umræða um málið fór fram á Alþingi, sem Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á.

„Hefði ég vitað að það þyrfti bara sérstaka umræðu til að fá ríkisstjórnina til að taka við sér þá hefði ég bara verið löngu búinn að biðja um hana,“ sagði Andrés Ingi á Alþingi í dag.

Í landsmarkmiðum er eldra markmið stjórnvalda um fjörtíu prósenta samdrátt í losun gróðurhúsaloftegunda fyrir árið 2030 hækkað í 55 prósent. Þetta er sameiginlegt markmið Evrópuríkja en í því fyrra var hlutur Íslands 29 prósent. Andrés Ingi spurði hvort stjórnvöld ætluðu að setja sér sjálfstætt markmið, líkt og Noregur.

„Fjörutíu prósentin í síðasta landsmarkmiði voru prúttuð niður í 29 prósent gagnvart ESB,“ sagði Andrés. „Stendur til núna að semja Ísland niður frá þeim 55 prósentum sem Evrópusambandið er búið að einsetja sér að ná í samdrætti? Og höfum í huga að þau 55 prósent eru málamiðlun við mestu kolafíklanna í Evrópu.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.vísir/Vilhelm

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, svaraði af hörku.

„Skuldbindingar Íslands prúttaðar niður. Það heldur þessu engu fram nemar örfáir þingmenn í pólitískum tilgangi. Þetta er útreiknað sanngirnisviðmið þar sem eitt gengur yfir alla. Og við skulum hafa þær staðreyndir á hreinu, líka hér í þingsal Alþingis,“ sagði Guðmundur.

Ríkisstjórnin hafi snúið við blaðinu hér á landi í loftslagsmálum.

„Við höfum aukið fjármagn bara í umhverfisráðuneytinu um sjö hundruð prósent og það dreifist á fjölbreyttar aðgerðir,“ sagði Guðmundur. „Við erum ljósár frá kyrrstöðunni sem ríkti í loftslagsmálum í upphafi kjörtímabilsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×