FIFA setur tvö knattspyrnusambönd í bann Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2021 12:02 Aðildarsambönd FIFA eru 211 talsins. Getty/David Ramos FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur sett knattspyrnusambönd Pakistans og Tjads í bann vegna afskipta annarra af samböndunum.
Knattspyrnusamböndin tvö munu ekki fá styrki frá FIFA á meðan á banninu stendur, hlé verður á þróunarverkefnum á vegum FIFA í löndunum, og lið frá löndunum geta ekki tekið þátt í keppnum á vegum FIFA. FIFA segir að ákvörðunin vegna knattspyrnusambands Pakistans sé tekin vegna afskipta „þriðja aðila“. Hópur undir forystu Ashfaq Hussain, sem var valinn af hæstarétti til að leiða pakistanska sambandið árið 2018, tók fyrir skömmu yfir starfsemi sambandsins. FIFA viðurkenndi ekki valið á hópnum árið 2018 en skipaði nefnd undir forystu Haroon Malik sem stýrt hefur sambandinu. FIFA segir í tilkynningu að send hafi verið út viðvörun vegna þess sem FIFA telur ólögmæta innrás í höfuðstöðvar pakistanska sambandsins. Ekki hafi verið brugðist við þeirri viðvörun. Pakistanska sambandið var áður sett í bann vegna afskipta þriðja aðila árið 2017. Knattspyrnusamband Tjad er einnig komið í bann en það er vegna afskipta stjórnvalda í miðafríkuríkinu. Stjórnvöld ákváðu að taka yfir starfsemi sambandsins og söðla undir sig eignir þess. Bannið gildir þar til að þessar ákvarðanir verða dregnar til baka.
Tjad Pakistan FIFA Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Sjá meira