Talin einn besti leikmaðurinn í Svíþjóð þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 14:32 Sveindís Jane Jónsdóttir stimplaði sig inn í íslenska landsliðið í undankeppni EM síðasta haust. vísir/vilhelm Þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik í sænsku úrvalsdeildinni er Sveindís Jane Jónsdóttir á lista Fotbollskanelan yfir bestu leikmenn deildarinnar.
Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst um helgina. Metfjöldi Íslendinga er í deildinni að þessu sinni. Tvær þeirra eru á lista Fotbollskanalen yfir bestu leikmenn deildarinnar. Glódís Perla Viggósdóttir er í 20. sæti listans og Sveindís í 23. sætinu. Glódís, sem leikur með Rosengård, er þekkt stærð í Svíþjóð en hún er að hefja sitt sjöunda tímabil þar í landi. Sveindís er hins vegar á sínu fyrsta tímabili í sænsku deildinni. Hún leikur með Kristianstad í sumar á láni frá Wolfsburg. Í umsögn Fotbollskanalen um Sveindísi segir að hún hafi vakið athygli þegar Ísland og Svíþjóð gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni EM síðasta haust. Kopparbergs og Rosengård hafi viljað fá hana en lotið í lægra haldi fyrir Wolfsburg sem hafi svo lánað hana til Kristianstad. Í umsögninni segir að hraðinn sé helsta vopn Sveindísar. Caroline Seger, fyrirliði Rosengård og sænska landsliðsins, er í efsta sæti lista Fotbollskanalen en fjórar af fimm efstu á honum leika með Rosengård sem endaði í 2. sæti á síðasta tímabili. Í umsögninni um Glódísi segir að hún sé sterk í loftinu og afar mikilvæg fyrir Rosengård og íslenska landsliðið. Leikur Eskilstuna United og Kristianstad í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 á sunnudaginn.
Sænski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fótbolti Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Sjá meira