Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL.
Hinn fjórhjóladrifni Outback, sem fór fyrst á markað árið 1995, kemur nú á alveg nýjum undirvagni (Subaru Global Platform, SGP) og með léttari og sterkari yfirbyggingu sem auka enn á öryggi bílsins í árekstrum vegna 40% meiri orkuupptöku í höggum á yfirbygginguna. Breytingarnar á bílnum hafa einnig aukið aksturseiginleikana ásamt því sem nýjungar í farþegarými bæta þægindi ökumanns og farþega. Nýr Outback hefur þegar staðist nýja MPDB árekstrarprófið hjá Euro NCAP sem kynnt var 2020 og er kröfuharðasta öryggisprófið sem Euro NCAP hefur hannað til þessa.
Meira öryggi og aukin dráttargeta
Nýr Outback er nú m.a. búinn uppfærðri og aflmeiri Boxervél sem hefur tveggja tonna dráttargetu. Þá er hann einnig kominn með 11,6 tommu snertiskjá með upplýsingakerfi Subaru, nýja kynslóð öryggiskerfisins EyeSight með fjölda eiginleika, þar á meðal nýja og enn fullkomnari andlitsgreiningu með víðara sjónarhorni til að greina hættur í umferðinni.

90% íhluta vélar og skiptingar ný hönnun
Fjögurra strokka 2,5 lítra Boxervél Outback hefur verið endurhönnuð frá grunni og nú eru um 90% allra íhluta vélarinnar og Lineartronic CVT gírskiptingarinnar ný hönnun. Meðal annars hefur þjöppuhlutfallið verið aukið, gírskiptingin nær yfir breiðara svið en áður, sem leitt hefur til 22% minna orkutaps miðað við fráfarandi gerð, ásamt því sem breytingarnar hafa í för með sér aukið vélartog og þar með meiri afköst í beygjum og upp brekkur.
Breytingar á fjöðrunarkerfi
Einnig hafa verið gerðar breytingar á fjöðrunarkerfi Outback til að bæta aksturseiginleika og þægindi, m.a. með aukinni slaglengd fjöðrunarinnar og betri hljóðeinagrunarefnum sem viðhalda betur þægindum farþega á ójöfnum vegum og vegslóðum.

Meira pláss í farþega- og farangursrými
Þá er farþegarými Outback einnig rýmra en í fráfarandi gerð. Þannig hefur fjarlægð milli fram- og aftursæta verið aukið um tæpa 11 sentimetra ásamt því sem meira bil er milli framsæta. Einnig hefur farangursrýmið verið stækkað og opnunarbreidd afturhlera aukin til að bæta aðgengi auk þess sem hlerinn er nú með snertilausri og rafdrifinni opnun