Erlent

Bjart­sýnn á að samið verði um vopna­hlé á næstu dögum

Atli Ísleifsson skrifar
Árásir Ísraelshers hafa haldið áfram í dag og það sem af er þessum fimmtudegi hafa Ísraelar gert rúmlega hundrað árásir á Gasa.
Árásir Ísraelshers hafa haldið áfram í dag og það sem af er þessum fimmtudegi hafa Ísraelar gert rúmlega hundrað árásir á Gasa. AP/Maya Alleruzzo

Háttsettur meðlimur í Hamas-samtökunum segist bjartsýnn á að tilraunir til að koma á vopnahléi á Gasasvæðinu muni bera árangur á næstu dögum.

Breska ríkisútvarpið segir frá því að Moussa Abu Marzouk hafi sagt þetta í samtali við líbanskan fjölmiðil en Egyptar hafa unnið að því að koma á vopnahléi síðustu daga.

Þessa bjartsýni var hinsvegar ekki að heyra í orðum Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í gær sem sagði að Ísraelar muni halda árásum á Gasa áfram uns ró færðist yfir og öryggi ísraelskra borgara verði tryggt, eins og hann orðaði það.

Enda hafa árásirnar haldið áfram og Ísraelar hafa það sem af er þessum fimmtudegi gert rúmlega hundrað árásir á Gasa.

Hamas-liðar hafa einnig svarað fyrir sig með eldflaugaskothríð yfir til Ísrael en nú hafa alls 227 látið lífið í átökunum á Gasa, þar af rúmlega hundrað konur og börn.

Í Ísrael hafa ellefu almennir borgarar látið lífið síðan átökin hófust og eru tvö börn þar á meðal.


Tengdar fréttir

Eygja möguleika á vopnahléssamningi á föstudag

Benja­mín Netanja­hú, for­sætis­ráð­herra Ísraels, virðist ekki ætla að verða við á­kalli Banda­ríkja­for­seta Joe Bidens um að draga veru­lega úr loft­á­rásum á Gasa-svæðið. Þvert á móti gaf hann það út eftir sam­tal þeirra í dag að hann myndi gefa í á­rásirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×