Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.
Lof
Frábært spil Breiðabliks
Breiðablik vann þægilegan 4-0 sigur á Leikni Reykjavík á Kópavogsvelli. Vissulega vantaði töluvert í lið Leiknis, eitthvað sem nýliðarnir mega einfaldlega ekki við er þeir mæta liðum á borð við Breiðablik.
Þriðja mark Blika var samt sem áður stórglæsilegt. Fór Bjarki Már Ólafsson, fyrrum aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar hjá Al Arabi í Katar, yfir hvað Blikar gerðu vel á Twitter-síðu sinni.
Blikar frábærir gegn Leikni
— Bjarki Már Ólafsson (@bjarkiolafs) July 5, 2021
3ja markið smiðshögg á sókn sem fangar styrkleika Blika
- Kollektív & interaktív boltalaus hreyfing - Opna svæði fyrir næsta mann
- Sækja pressu & spil á milli lína
- Upplit
- Spil utan á blokk & yfirtala
- Hratt, stutt spil
- Balance ef bolti tapast pic.twitter.com/gqBVhh7emM
Sverrir Páll Hjaltested
Eftir skelfilegt klúður geng Fylki í umferðinni á undan hefði margur framherjinn farið inn í skel og verið lítill í sér. Sverrir Páll er hins vegar ekki slíkur framherji. Hann slapp í gegnum vörn Hafnfirðinga á 73. mínútu og kláraði færið af mikilli yfirvegun.
Seigla KR-inga
Eftir að lenda manni undir gegn KA á Dalvík tókst KR-ingum að halda út og landa dýrmætum 2-1 sigri. Aðallega þökk sé frábærri frammistöðu Beitis Ólafssonar í markinu. Kjartan Henry Finnbogason skoraði glæsilegt mark í liði gestanna en Beitir bar af.
Last
Varnarleikur Stjörnunnar í föstum leikatriðum
Stjarnan hafði verið á góðu skriði áður en Keflavík kom í heimsókn í Garðabæinn. Gestirnir unnu 3-2 útisigur þar sem föst leikatriði voru banabiti heimamanna. Annað mark Keflavíkur kom eftir hornspyrnu þar sem gestirnir unnu fyrsta bolta, annan bolta og að lokum þriðja bolta er Joey Gibbs kom tuðrunni yfir línunni.
Í þriðja marki Keflavíkur – sem reyndist sigurmarkið á endanum – tókst Haraldi Björnssyni, markverði Stjörnunnar, ekki að komast í boltanum sem straukst af Magnúsi Þóri Magnússyni og endaði með því að fara í Ígnacio Heras Anglada og þaðan í netið.
Kristján Flóki
KR-ingar lentu manni undir af því Kristján Flóki Finnbogason nældi sér í tvö gul spjöld á innan við mínútu. Það fyrra fékk hann fyrir að benda dómara leiksins á að hann hefði átt að fá vítaspyrnu. Það síðara var svo fyrir pirringsbrot örskömmu síðar. Sem betur fer fyrir Kristján Flóka – og KR – þá kom það ekki að sök.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.