FH kemur þá í heimsókn í Laugardalinn og fari svo að Þróttur vinni þá kemst félagið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik í sögunni. Það er því ekki að ástæðulausu að talað sé um „stærsta leik í sögu kvennaknattspyrnu Þróttar.“
„Það sést alveg að það er mikil stemning í klúbbnum. Bæði í kringum liðið og hjá stuðningsfólki okkar. Það er verið að hvetja fólk til að mæta inn á Köttarasíðunni [stuðningssíðu Þróttar] og svona. Þar sem við erum á heimavelli er rosaleg dagskrá í kringum leikinn, grill fyrir leik, hoppukastali fyrir krakkana og fleira í þeim dúr,“ sagði Álfhildur Rósa í stuttu spjalli við Vísi fyrir stórleikinn á föstudag.
Ásamt því að vera í undanúrslitum bikarsins þá sitja Þróttarar í 4. sæti Pepsi Max deild kvenna með 15 stig að loknum 10 leikjum, tveimur stigum minna en Selfoss sem er sæti ofar í töflunni.
Álfhildur Rósa hefur byrjað alla leiki liðsins og þrátt fyrir að vera hörð í horn að taka á miðju vallarins hefur hún aðeins náð sér í eitt gult spjald en mörkin hafa látið á sér standa það sem af er sumri.
„Við áttum svolítið erfitt með að koma okkur af stað í byrjun móts en erum mjög ánægðar með hvar við erum núna. Ekki annað hægt þegar við erum ofarlega í töflunni – eins og er – og komnar í undanúrslit í bikar, getum ekki mikið kvartað. Andrúmsloftið í liðinu er mjög gott og við erum sérstaklega spenntar fyrir leiknum á föstudag.“
Ákveðin ábyrgð sem fylgir fyrirliðabandinu
Þrátt fyrir að vera aðeins tvítug þá hefur Álfhildur Rósa á sínu þriðju tímabili sem fyrirliði uppeldisfélagsins. Hún spilaði sína fyrstu deildarleiki fyrir Þrótt sumarið 2015 er liðið féll úr efstu deild.
Þrátt fyrir að hafa spilað yfir 100 leiki í öllum keppnum fyrir meistaraflokk og verið fyrirliði í rúmlega helming þeirra þá er leikurinn á morgun sérstakur.
„Það fylgir þessu mikil ábyrgð og pressa. Það er mikið af fólki að fara mæta, það er bara gaman en það verður pressa á manni að stýra liðinu og rífa það upp ef þess þarf. Það er meiri pressa í svona stórum leikjum en við stöndum allar þétt saman svo pressan dreifist í rauninni á alla, að mínu mati allavega.“

Eiga harma að hefna
Þegar ljóst var að Þróttur myndi fá FH, Val eða Breiðablik í undanúrslitum gat liðið vart beðið um betri drátt. FH – sem situr í 2. sæti Lengjudeildarinnar – á heimavelli. Liðin hafa hins vegar mæst nokkuð oft undanfarin ár og miðað við úrslitin þá má reikna með hörkuleik.
„Aðallega geggjað að vera á heimavelli í svona leik. FH hafa verið að standa sig mjög vel í Lengjudeildinni og við vitum alveg að þetta verður ekkert auðveldur leikur. Við höfum mætt þeim oft í gegnum árin og þetta verður mikil barátta.“
Liðin hafa mæst fjórum sinnum í deildarkeppni á undanförnum tveimur árum og einu sinni í bikarnum. Þróttur hefur vinninginn í deildinni - tveir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap - en FH vann bikarleik liðanna í Laugardalnum á síðustu leiktíð 1-0 og því eiga heimastúlkur harma að hefna á morgun.
„Bikarinn er auðvitað allt öðruvísi keppni. Við erum byrjaðar að undirbúa okkur fyrir leikinn og skipuleggja hvað við ætlum að gera í leiknum. Við höfum samt reynt að halda í sömu rútínu og vanalega þó við séum mikið að pæla í þessum leik.“
Besta stuðningsfólk landsins í stúkunni
„Eins og staðan er núna er mjög sátt í Þrótti og líður vel þar. Maður veit samt aldrei hvaða tækifæri getakomið en eins og staðan er í dag er ég mjög sátt,“
sagði miðjumaðurinn öflugi aðspurð hvað framtíðin bæri í skauti sér. Fyrr á þessu ári var hún valin í æfingahóp íslenska A-landsliðsins.
Að lokum hrósaði fyrirliðinn stuðningsfólki Þróttar í hástert.
Leyfa litlu stelpunum að fagna með @throtturrvk pic.twitter.com/Yt2VELgWrv
— Katrín Atladóttir (@katrinat) July 11, 2021
„Okkur í liðinu finnst við eiga besta stuðningsfólk landsins og viljum hvetja alla Köttara til að koma og horfa á okkur spila á föstudaginn. Það verður gríðarleg stemning á þessum leik,“ sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar Reykjavíkur, að lokum.
Þróttur Reykjavík og FH mætast í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna klukkan 18.00. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Útsending hefst klukkan 17.50.

Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.