Innlent

„Þessar tölur sýna það ó­tví­rætt að bólu­setningin virkar“

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. Stöð 2

Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð. 

Hann segir nýlega úttekt í Bretlandi sýna ótvírætt fram á verulega virkni bóluefnanna. Þar hafi komið í ljós þrefalt minni smithætta meðal þeirra sem bólusettir eru og að jafnframt verði þeir minna lasnir ef þeir smitast.

Þá nefnir Björn einnig nýlega úttekt sem gerð var í Bandaríkjunum, þar sem átján þúsund dauðsföll sem áttu sér stað í maí mánuði voru skoðuð.

„Þetta er stór tala, en af þeim voru 99 prósent óbólusettir. Þannig að innan við eitt prósent þeirra sem dóu á þessu tímabili í maí í Bandaríkjunum voru bólusettir. Þannig þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin hún virkar.“

Björn ítrekar að tíðni endursýkinga hjá þeim sem smitist af Covid-19 sé talin vera nokkur. 

„Hlutfallslega er það sambærilegt og jafnvel betra hjá þeim sem eru bólusettir, þannig að bólusetningin hún virkar.“

Hér má sjá viðtalið við Björn Rúnar í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×