Erlent

Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn á fferð um götur Lashkar Gah í Helmand-héraði.
Hermenn á fferð um götur Lashkar Gah í Helmand-héraði. AP/Abdul Khaliq

Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat.

Vígamenn hafa náð tökum á níu af tíu hverfum Lashkar Gah, þrátt fyrir loftárásir flughers Afganistans og Bandaríkjanna. Íbúum borgarinnar hefur verið ráðlagt að flýja heimili sín í aðdraganda frekari loftárása.

Blaðamenn AP fréttaveitunnar ræddu við íbúa sem segjast innilokaðir á heimilum sínum vegna átaka í Lashkar Gah. Þeir segja vígamenn spígspora um götur borgarinnar.

Sérsveitir hafa verið sendar til aðstoðar stjórnarhersins og segist herinn ráða mikilvægum byggingum í eigu lögreglunnar og hersins. Talibanar hafa náð tökum á sjónvarps og útvarpsstöð borgarinnar.

Gífurlegur munur er á getu mismunandi sveita stjórnarhers og annarra öryggissveita Afganistans. Almennir hermenn, lögregluþjónar og meðlimir annarra sveita segjast hvorki hafa fengið þjálfun eða búnað til að heyja stríð við Talibana.

Sérsveitunum, sem kallast KKA, hefur hins vegar gengið mjög vel gegn Talibönum en meðlimir þeirra eru tiltölulega fáir og geta ekki verið alls staðar í landinu.

Sjá einnig: Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp

AP fréttaveitan hefur eftir Sami Sadat, yfirmanni hersins í Helmand, að íbúar Lashkar Gah ættu að flýja borgina. Herinn muni ekki skilja neina Talibana eftir á lífi.

„Ég veit þetta er erfitt. Við gerum þetta fyrir framtíð ykkar. Fyrirgefið okkur ef þið þurfið að flýja í nokkra daga, vinsamlegast flýjið eins fljótt og auðið er.“

Falli borginni í hendur Talibana yrði um mikinn vendipunkt að ræða í átökunum í Afganistan, þar sem Talibönum hefur vaxið hratt ásmegin á undanförnum mánuðum. Hingað til hafa Talibanar lagt undir dreifðari byggðir í landinu og komið þar fyrir stjórnvöldum.

Lashkar Gah yrði fyrsta héraðshöfuðborgin af 34 sem félli í hendur Talibana um langt skeið.

Óljóst er hvort Talibanar myndu reyna að halda borginni en það gæti reynst þeim erfitt vegna þess að til að halda svo stórri byggð þarf líklegast að koma fyrir varðstöðvum og öðrum varnarvirkjum. Varnarvirkjum sem yrðu skotmörk loftárása en Bandaríkin hafa fjölgað loftárásum í Afganistan á undanförnum dögum.

Ashraf Ghani, forseti Afganistans, kenndi brottför Bandaríkjahers frá Afganistan um aukið ofbeldi í landinu. Hann sagði Talibana ekki vilja frið.

Talibanar gáfu nýverið út að þeir myndu ekki semja um frið fyrr en Ghani væri farinn frá völdum.


Tengdar fréttir

Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana

Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak.

Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum

Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum.

Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan

Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×