Donda átti upphaflega að koma út 23. júlí síðastliðinn en Kanye hélt svokallað hlustunarpartý á Mercedes-Benz leikvanginum í Atlanta þann dag. Daginn eftir viðburðinn bólaði þó ekkert á plötunni.
Þann fimmta ágúst hélt Kanye annað hlustunarpartý á Mercedes Benz leikvanginum. Mikið var um dýrðir á viðburðinum en Kanye lofaði þá að platan kæmi út daginn eftir. Þó kom líklega fáum á óvart að platan kom ekki út sjötta ágúst.
Kanye hélt sitt þriðja formlega hlustunarpartý vegna plötunnar Donda á fimmtudag í síðustu viku. Athygli vakti að Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkona Kanyes, kom óvænt fram í brúðarkjól í hlustunarpartýinu.
Nú er platan loksins komin út og fagna því eflaust margir. Viðbrögð við plötunni hafa að mestu verið jákvæð meðal aðdáenda rapparans.
Platan inniheldur heil 27 lög og er tæplega tveir klukkutímar að lengd.