Hin eina sanna íslenska ofurkona (er með einkenni áfallastreitu) Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar 21. september 2021 15:30 Við þekkjum öll þessa konu. Þessa óskaplega duglegu konu sem getur allt og er alltaf að. Hún er í góðri stöðu og lætur til sín taka í atvinnulífinu, labbar/hleypur 100km í janúar, hún fer á gönguskíði fyrir vestan, labbar upp á fjall nokkrum sinnum í viku, heldur flottustu matarboðin, er alltaf til staðar fyrir alla, passar í gallabuxur stuttu eftir fæðingu, fer á menningarviðburði, hefur sterkar skoðanir á þjóðmálum líðandi stundar, lætur engan bilbug á sér finna ef eitthvað bjátar á og svo má lengi telja. Alveg hreint dásamleg kona þessi íslenska valkyrja. Svo eru það allar þær sem ná ekki að tikka í framangreind box sem sitja heima og skoða Instagram-myndir af valkyrjunum og fyllast af vanlíðan og sektarkennd. Því það er auðvitað fásinna að sleppa góðu tækifæri til að skella sér á eitt stykki þungt samviskubit. Á vafri mínu um netið í gær rakst ég á lista yfir samfélagslega samþykkt viðbrögð við áföllum og það sem meira er að fólki er oft hælt fyrir að bera slíka eiginleika í fari sínu. Fullkomnunarárátta Ofvirkni Alltaf með fulla dagskrá Tekur sér sjaldan frí „Áfram veginn” á hnefanum Forgangsraðar frama og ytri ímynd fram yfir fjölskyldu og innri frið Lítil matarlyst eða oft í einhverskonar matarátaki Ofþjálfun Sefur undir 6 klt á nóttu - To-do listum er stillt upp á næturnar Alltaf að gera öðrum til geðs og ruggar engum bátum Þið sjáið kannski núna hvert ég er að fara með þessum skrifum. Við skulum kannski skoða betur hvað áfall er áður en við höldum áfram. Hvað er áfall (e. trauma)? Helsti samnefnari áfalla er að það er markandi upplifun af atburði eða samskiptum þar sem manneskja upplifir afgerandi hjálparleysi, yfirþyrmandi lífs og öryggisógn gagnvart sjálfum sér eða öðrum án þess að geta komið nokkrum vörnum við. Áföll geta verið af ýmsum toga og þau geta verið missýnileg, misviðurkennd og misáþreifanleg. Áfall er skilgreint af þeirri manneskju sem fyrir verður. Líkt og fram hefur komið eru viðbrögð okkar við áföllum einmitt ólík og allskonar. Viðbrögð okkar og upplifun getur líka verið undir áhrifum á því hvernig samfélagið í kringum okkur bregst við. Það eru til dæmis ólík viðbrögð samfélags við áfalli á borð við náttúruhamförum og svo nauðgun - sem er skilgreint sem áfall af mannavöldum. Þau sem verða fyrir áfalli af mannavöldum bera oft með sér þunga og fyrirferðamikla skömm. Sem gerir það erfitt fyrir viðkomandi að ávarpa áfallið sjálft og afleiðingar þess og þar af leiðandi á sér ekki stað úrvinnsla. Það getur samt sem áður líka átt við allar gerðir af áföllum; það er algengt að fólk leiti sér ekki faglegrar aðstoðar og haldi áfram á hnefanum svokallaða. Þá getur manneskja farið að þróa með sér áfallastreitu sem getur svo þróast út í áfallastreituröskun. Ef við ímyndum okkur hjól sem snýst sinn vanafasta lífsins hring má segja að áfallastreituröskun sé nokkurs konar prik sem er stungið á milli rimlana í hjólinu og hefur þau áhrif að það getur ekki snúist áfram. Áföll á borð við ofbeldi í æsku eru talin lang víðtækasta (en jafnframt faldasta) og kostnaðarsamasta heilsufarsvandamál í Bandaríkjunum. Hér á landi kosta afleiðingar hvers konar ofbeldis um 2 milljarða á ári hverju. Tvö þúsund milljónir. Kulnun Undanfarin ár höfum við séð mikla aukningu í greiningum á kulnun (e. burn out) og eru langflestir skjólstæðingar sem fara í gegnum endurhæfingu hjá VIRK með slíka greiningu; konur. Ég vona að þetta komi ekki illa við neina konu sem þetta les en það er mitt mat að þær sem fara í kulnun séu ekki starfandi á vinnustað sem er með ólíðandi álag. Heldur er það í raun gamalt áfall sem hefur ekki verið ávarpað eða unnið úr sem hefur tekið yfir taugakerfið hjá viðkomandi (ofur)konu - og hjólið getur ekki snúist lengur hring eftir hring í hversdagsins önn. Álagið og samskiptin á vinnustaðnum verða svo að svokölluðum trigger-um sem kalla fram þessi einkenni áfallastreitu. Hin nýja og uppfærða íslenska ofurkona Ég á mér þá ósk að uppfæra ímynd og einkenni þessarar íslensku ofurkonu. Þessi kona hlúir að sér. Hún segir nei þegar tankurinn tæmist og já takk við tilboðum um aðstoð, stóra og smáa. Hún kann líka að biðja um hjálp. Hún má fara heim og leggja sig eftir að hafa farið með barnið sitt á leikskólann ef hún hefur tækifæri til. Og lætur ekki samvisku bíta sig í rassinn fyrir vikið. Hún má sitja í smá stund útí bíl áður en hún fer inn í annasamar aðstæður, hvort sem það er heima eða á vinnustað. Bara vera ein í smá stund að klára að hlusta á lagið eða bara anda. Hún má líka segja að hún treysti sér ekki í verkefni dagsins af því að hún er með slæma fyrirtíðarspennu. Allt án þess að skammast sín. Nýja íslenska ofurkonan hefur líka aðgang að sálfræðiþjónustu á borð við EMDR (meðferð við áföllum og erfiðum minningum), HAM (hugræn atferlismeðferð), og CPT (hugræn útvinnslumeðferð). Því ef hún getur unnið úr gömlu álagi og áföllum eru talsvert minni líkur á því að hún gangi á vegg á næstunni. Það er mín ósk að stjórnvöld fjármagni frumvarið um niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir alla. Sem allra fyrst! Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Viðreisnar og með diplómu á meistarastigi í sálgæslufræðum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Diljá Ámundadóttir Zoëga Viðreisn Heilsa Mest lesið Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson Skoðun Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Myllan sem mala átti gull Andrés Kristjánsson Skoðun Pírati pissar í skóinn sinn Helgi Áss Grétarsson Skoðun Sjö mýtur um loftslagsbreytingar Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði Ólafur Ingólfsson Skoðun Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina Hópur Röskvuliða Skoðun Fáum presta aftur inn í skólana Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Icelandic Learning is a Gendered Health Issue Logan Lee Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar Skoðun Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni Helga Kristín Kolbeins skrifar Skoðun Fé án hirðis Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Myllan sem mala átti gull Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Sjö mýtur um loftslagsbreytingar Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Pírati pissar í skóinn sinn Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fáum presta aftur inn í skólana Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina Hópur Röskvuliða skrifar Skoðun Icelandic Learning is a Gendered Health Issue Logan Lee Sigurðsson skrifar Skoðun Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar Már Wolfgang Mixa skrifar Skoðun Framtíð Öskjuhlíðar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra Inga Sæland skrifar Skoðun Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar Skoðun Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Getur Sturlunga snúið aftur? Leifur B. Dagfinnsson skrifar Skoðun Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Vorbókaleysingar Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps? Snorri Másson skrifar Skoðun Liðveisla fyrir öll Atli Már Haraldsson skrifar Skoðun Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar Skoðun Að standa við stóru orðin Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas? Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar
Skoðun Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar
Skoðun Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar
Skoðun Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings Ingibjörg Isaksen skrifar
Skoðun Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas? Þórður Snær Júlíusson skrifar
Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun