Innlent

Ei­ríkur á Omega dæmdur til greiðslu 109 milljóna sektar fyrir meiri­háttar skatt­svik

Atli Ísleifsson skrifar
Úr Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember á síðasta ári þegar frávísunarkrafa Eiríks var tekin fyrir. Fremri maðurinn á myndinni er lögmaður Eiríks, Jón Örn Árnason.
Úr Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember á síðasta ári þegar frávísunarkrafa Eiríks var tekin fyrir. Fremri maðurinn á myndinni er lögmaður Eiríks, Jón Örn Árnason. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjónvarpsmanninn Eirík Sigurbjörnsson, oftast kenndur við kristilegu stöðina Omega, í tíu mánaða fangelsi og greiðslu 108,9 milljóna króna sektar fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum.

Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingarinnar, haldi Eiríkur almennt skilorð í tvö ár. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna skal Eíríkur sæta 360 daga fangelsi.

Eiríkur var dæmdur fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum árin 2012 til 2017 með því að hafa sleppt því að telja fram persónulegar úttektir að upphæð samtals tæplega 79 milljónum króna. Komst hann þannig hjá því að greiða rúmlega 36 milljónir í tekjuskatt og útsvar.

Í ákæru kom fram að Eiríkur hefði ekki talið fram annars vegar persónulegar úttektir að fjárhæð samtals 67,1 milljónum af greiðslukorti sem skuldfærðust af bankareikningi Gospel Channel Evrópa hjá norska bankanum DNB. Sömuleiðis var hann ákærður vegna úttekta hans af viðskiptareikningi hans hjá Global Mission Network ehf að upphæð 11,5 milljóna króna. Eiríkur neitaði sök í málinu.

Tvívegis endurúthlutað

Í dómnum kemur fram að Eiríkur hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var horft til þyngingar að fjárhæðirnar sem um ræddi hafi verið verulegar. Þó sé einnig litið til þess að langt sé um liðið frá því að brotin voru framin.

Héraðssaksóknari gaf út ákæru í málinu í janúar 2020 og það þingfest í mars sama ár. Málinu var endurúthlutað tvisvar sinnum eftir að það var rekið af dómara í janúar það og fór aðalmeðferð málsins fram 8. september síðastliðinn. Sérstaklega var óskað eftir því af hún færi fram af hausti af persónulegum ástæðum sem varða ákærða.

Eiríkur var jafnframt gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjenda, alls 3,4 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dómur var kveðinn upp í málinu 1. október síðastliðinn en hefur hann nú verið birtur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×