Þetta kemur fram í frétt á vef Isavia, en um er að ræða einn hluta af endurbótum á brautakerfinu sem og liður í stórframkvæmdum á vellinum.
Núverandi akbraut var fræst, gert var við hana og ráðist í yfirlögn á henni með tilheyrandi undirvinnu. Þessu til viðbótar var ljósabúnaður á akbrautinni endurnýjaður. Efnið sem fræst var upp verður notað síðar í öðrum verkefnum á vellinum.
„Framkvæmdin hefur gengið vonum framar,“ er haft eftir Ingunni Loftsdóttur, deildarstjóra flugbrauta og vega hjá Isavia.
„Við réðumst í verkið í vor og vannst það vel þrátt fyrir að veðuraðstæður hafi ekki alltaf verið okkur hliðhollar. Endurnýjunin á Kilo var mikilvægt verkefni og mun hún bæta þjónustuna á vellinum.“