Innlent

Jón Baldvin sýknaður í héraðsdómi

Eiður Þór Árnason skrifar
Jón Baldvin Hannibalsson, er fyrrverandi ráðherra og sendiherra Íslands.
Jón Baldvin Hannibalsson, er fyrrverandi ráðherra og sendiherra Íslands. vísir/vilhelm

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var í morgun sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru fyrir kynferðislega áreitni á Spáni.

Jón Baldvin neitaði sök í máli héraðssaksóknara gegn sér þar sem hann var sakaður um að hafa strokið rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili hans á Spáni í júní 2018. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort niðurstöðunni verði áfrýjað.

Fréttablaðið greindi fyrst frá niðurstöðu héraðsdóms. Aðalmeðferð málsins fór fram 11. október og fór héraðs­sak­sóknari fram á Jón Baldvin yrði dæmdur í tveggja til þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá krafðist Carmen einnar milljónar króna í miskabætur en þeirri kröfu var vísað frá dómi. 

Jón Baldvin var fyrst ákærður í tengslum við málið árið 2019 en síðan hefur málinu endurtekið verið vísað frá í héraði og sent aftur heim í hérað úr Landsrétti.

Carmen Jóhannsdóttir.Mynd/Raul Baldera

Ber ekki saman um atburðarásina

Atvikið á að hafa átt sér stað þann 16. júní 2018 á heimili Jóns Baldvins og eiginkonu hans Bryndísar Schram í Grananda á Spáni. Mæðgurnar Carmen og Laufey Ósk Arnórsdóttur voru í heimsókn ásamt yngri systur Carmenar yfir helgi en þær voru búsettar annars staðar á Spáni. 

Carmen og móðir hennar, Jón Baldvin, Bryndís og íslensk nágrannakona þeirra á Spáni voru viðstödd umræddan kvöldverð en þeim ber ekki saman um hvað gerðist þetta kvöld.

Að sögn Carmenar og Laufeyjar káfaði Jón Baldvin á rassi þeirrar fyrrnefndu utanklæða við borðhaldið þegar Carmen hafði staðið upp til að skenkja víni í glös viðstaddra.

Hún hafi síðan sest aftur niður, í áfalli að eigin sögn, en það var þá móðir hennar sem sagði Jóni Baldvini að biðja hana afsökunar. Hann hafi spurt á hverju og hún þá sagt að hún hafi séð hann káfa á rassi dóttur sinnar.

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm

Telur mögulegt að hann hafi verið leiddur í gildru

Líkt og fyrr segir þá neitar Jón Baldvin alfarið sök í málinu og velti hann upp tveimur skýringum í dómssal. Annars vegar að mæðgunum hafi ekki verið sjálfrátt vegna ölvunar og hins vegar að málið hafi verið undirbúið af þeim fyrir fram og þær komið í heimsókn til þess að setja atvikið á svið og saka hann um kynferðisofbeldi.

Að sögn Jóns Baldvins spratt Laufey á fætur fyrirvaralaust þegar um mínúta var liðin af borðhaldinu og fór fram með ásakanirnar:

„Við þetta leystist borðhaldið upp. Við áttum ekki von á þessu. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ sagði Jón.

Að sögn Car­menar og Lauf­eyjar var það þó svo að Car­men hafði staðið upp frá borði á einum tíma­punkti yfir matnum og farið að sækja vín­flösku sem var kæld í vaski við hlið borðsins. Hún hafi síðan komið aftur að borðinu og þá staðið við hlið Jóns Bald­vins á meðan hún skenkti víni í glösin en hann hafi þá byrjað að strjúka rass Car­menar.

Hún hafi stirðnað upp við þetta og fengið á­fall en ekki gert neitt í málinu heldur sest aftur við hlið móður sinnar. Hún hafi þá krafið Jón Bald­vin um af­sökunar­beiðnina.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Bryn­dís í upp­námi í dóm­sal: „Allt í einu var hún bara um­snúin“

Bryn­dís Schram, eigin­kona Jóns Bald­vins Hannibals­sonar, virtist vera í tals­verðu upp­námi þegar hún bar vitni fyrir dómi í dag í máli héraðs­sak­sóknara gegn Jóni Bald­vini. Honum er gert að sök að hafa káfað á rassi Car­menar Jóhanns­dóttur í matar­boði á heimili þeirra hjóna á Spáni í júní 2018.

Vilja að Jón Baldvin verði dæmdur í allt að þriggja mánaða fangelsi

Héraðssaksóknari leggur til að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, verði dæmdur í tveggja til þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þetta kom fram í máli hans við lok aðalmeðferðar í máli hans gegn Jóni Baldvini fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Telur mögulegt að mæðgurnar hafi sett leikþátt á svið

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, neitar sök í máli héraðssaksóknara gegn sér þar sem hann er sakaður um að hafa strokið rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili hans á Spáni í júní 2018. Hann telur að Carmen og Laufey Ósk, móðir hennar, hafi mögulega komið í heimsókn til sín gagngert til að setja atvikið á svið og saka hann um kynferðisofbeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×