Hiti á landinu verður um og yfir frostmarki, en frystir víða í kvöld.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á morgun sé spáð suðaustan og austan fimm til tíu metrum á sekúndu á Suður- og Vesturlandi, skýjað með köflum og stöku skúrum eða éljum.
„Hiti kringum frostmark. Hægari vindur norðan- og austanlands, léttskýjað og frost að 10 stigum í innsveitum.
Síðan eru áfram horfur á rólegu veðri á föstudaginn. Um helgina er hins vegar spáð hvössum vindi á landinu, með rigningu á laugardag, en skúrum eða éljum á sunnudag. Úrkoman verður einkum bundin við sunnan- og vestanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Suðaustan og austan 5-10 m/s á Suður- og Vesturlandi, skýjað með köflum og stöku skúrir eða él. Hiti kringum frostmark. Hægari vindur norðan- og austalands, bjartviðri og frost að 10 stigum í innsveitum.
Á föstudag: Suðaustan 5-10, en 10-15 við suðvesturströndina. Víða skýjað með köflum, þurrt veður og vægt frost. Smáskúrir með austur- og suðurströndinni og frostlaust þar.
Á laugardag: Gengur í suðaustan 15-23 m/s með rigningu, en úrkomulítið norðanlands. Hlýnandi veður, hiti 6 til 12 stig síðdegis, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan.
Á sunnudag: Hvöss sunnanátt og rigning í fyrstu, en snýst síðan í hvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum og kólnar. Þurrt norðaustantil á landinu.
Á mánudag: Stíf suðvestanátt með rigningu eða slyddu, síðar éljum. Úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt og él, en áfram þurrt að mestu í norðausturfjórðungi landins. Vægt frost víða um land.