Innlent

Opna nýtt farsóttarhús við Suðurlandsbraut vegna fjölda smitaðra

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Reykjavík Lights Hotel við Suðurlandsbraut 16 verður breytt í farsóttarhús fyrir helgi.
Reykjavík Lights Hotel við Suðurlandsbraut 16 verður breytt í farsóttarhús fyrir helgi. Vísir/Vilhelm

Nýtt farsóttarhús verður opnað við Suðurlandsbraut fyrir helgi en farsóttarhúsin tvö sem þegar eru starfrækt í Reykjavík eru við það að fyllast í ljósi fjölda smita. Þá er farsóttarhúsið á Akureyri þegar fullt. 

Mikill fjöldi fólks er nú að greinast með veiruna og eiga farsóttarhús landsins erfitt með að anna eftirspurn. Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa hjá Rauða krossinum, lýsti þungum áhyggjum yfir stöðu mála í kvöldfréttum í gær. 

„Staðan hefur sjaldan verið eins slæm og hún er núna og því miður virðist hún bara ætla að versna,“ sagði Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins. 

Sjúkratryggingum Íslands var í kjölfarið falið að útvega fleiri rými til einangrunar og liggja nú fyrir samningar um opnun nýs farsóttarhús, Reykjavík Lights hótel við Suðurlandsbraut 16.  

Að því er kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands er um að ræða 105 herbergja hótel sem mun þá geta hýst þá sem hafa ekki möguleika á einangrun annars staðar. Þá hefur verið samið við Rauða Krossinn um að annast þjónustu við gesti þar. 

„Rekstur farsóttarhúsa er mikilvægur liður í því að hefta útbreiðslu núverandi smitbylgju í faraldrinum og draga þannig úr álagi á sjúkrahúsum,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Sjaldan jafn slæm staða og nú í farsóttarhúsunum

Staðan hefur sjaldan verið eins slæm og hún er núna í farsóttarhúsunum en forstöðumaður þeirra segir að svo virðist sem staðan eigi enn eftir að versna. Hundrað og þrjátíu manns dvelja nú í þremur farsóttarhúsum.

Telur ekki að nýjar takmarkanir breyti miklu

Kórónuveirufaraldurinn hefur verið á mikilli uppsiglingu undanfarna daga og hefur það haft talsverð áhrif á störf farsóttarhúsa Rauða Krossins. Um ellefu hundruð manns eru í einangrun þessa stundina og farsóttarhúsin að sprengja utan af sér.

Vill herða tak­markanir til að tryggja gleði­leg jól

Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttarhúsanna, segist vilja herða samkomutakmarkanir sem fyrst til að hægt verði að tryggja að landsmenn geti haldið gleðileg jól í desember. Hann segir að þau farsóttarhús sem nú séu starfrækt séu að fyllast og að álagið á kerfið sé gífurlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×