Kimberly Potter (49) var ákærð fyrir manndráp eftir að hún skaut hinn tuttugu ára gamla Daunte Wright til bana í apríl í Brooklyn Center, sem er úthverfi borgarinnar Minneapolis. Wright var stöðvaður í umferðinni en hann var eftirlýstur fyrir að hafa ekki mætt fyrir dómara.
Það vissu lögregluþjónarnir þó ekki þegar þeir stöðvuðu hann. Potter var að þjálfa nýjan lögregluþjón og sögðust þau hafa stöðvað Wright vegna þess að hann væri með útrunnin bílnúmer og vegna lyktarspjalds sem hékk úr spegli hans, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Þegar þau komust að því að Wright væri eftirlýstur reyndu þau að handtaka hann.
Wright reyndi að komast undan og settist aftur inn í bíl. Potter tók þá upp skammbyssu, kallaði „rafbyssa, rafbyssa, rafbyssa“ og hleypti af. Wright dó af sárum sínum en Potter staðhæfði að hún hefði ætlað að taka upp rafbyssu og hætti í lögreglunni skömmu síðar.
Sjá einnig: „Hver þremillinn. Ég skaut hann“
Á þessum tíma stóðu yfir réttarhöld yfir Derek Chauvin, fyrrverandi lögregluþjóni, sem var dæmdur fyrir að myrða George Floyd í Minneapolis.
Myndband úr vestismyndavél hennar má sjá hér að neðan. Vert er að vara lesendur við því að myndbandið gæti vakið óhug.
AP fréttaveitan segir að verjendur Potter muni reyna að ramma málaferlin á þann veg að hún hafi gert saklaus mistök með því að draga upp vitlaust skotvopn. Þeir hafa áður haldið því fram að hefði Potter ætlað að skjóta Wright til bana hefði hún verið í rétti.
Wright hefði ógnað lífi lögregluþjóna á staðnum með því að reyna að flýja á bíl sínum.
Saksóknarar muni hins vegar staðhæfa að hún væri reynslumikill lögregluþjónn sem hefði gengist umfangsmikla þjálfun sem ætti að koma í veg fyrir mistök af þessu tagi.
Hún hafi verið í lögreglunni í 26 ár og hafi nokkrum sinnum farið í þjálfun varðandi notkun rafbyssa, þar á meðal tvisvar sinnum á sex mánuðum áður en hún skaut Wright. Þeir segja að eitt námskeið hafi sérstaklega snúist um það að lögregluþjóna eigi að læra að þekkja muninn á skammbyssu og rafbyssu til að koma í veg fyrir svona atvik.