Innlent

Bjarni segir skaða af sóttvarnaaðgerðum verða bættan

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að stjórnvöld muni koma fyrirtækjum til aðstoðar án þess að það hafi verið tilgreint nánar.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að stjórnvöld muni koma fyrirtækjum til aðstoðar án þess að það hafi verið tilgreint nánar. Vísir/Vilhelm

Fjármálaráðherra heitir því að ríkið muni hlaupa undir bagga með fyrirtækjum sem lendi í áframhaldandi rekstrarerfiðleikum vegna kórónuveirufaraldursins. Borgarstjóri gagnrýnir hins vegar að ekki séu gefin skýr skilaboð um aðgerðir til að mæta stöðu fólks og fyrirtækja.

Ríkisstjórnin kynnti í gær víðtækar samkomutakmarkanir vegna vaxandi útbreiðslu nýjasta afbrigðis kórónuveirunnar hér á landi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri greindi frá því á Facebook síðu sinni í gær að neyðarstjórn borgarinnar hafi fundað eftir að ný reglugerð stjórnvalda hefði verið kynnt. Hann saknaði þess að ekki væru gefin skýr skilaboð um aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar til að mæta stöðunni fyrir fólk og fyrirtæki.

Dagur segir margvíslegan rekstur þurfa á jólavertíðinni að halda til að rétta úr kútnum. Janúar og febrúar geti orðið mörgum fyrirtækjum erfiðir, ekki síst í veitingarekstri, viðburðahaldi, sviðlist og ferðaþjónustu.

Dagur B. Eggertsson vill að stjórnvöld skilji fyrirtæki ekki eftir í óvissu yfir hátíðarnar.Vísir/Vilhelm

„Mér finnst skipta miklu máli að ríkisstjórn og Alþingi gefi miklu skýrar til kynna að til standi að koma til móts við fólk í þessum aðstæðum og það verði ekki skilið eftir með óvissuna vegna faraldursins yfir hátíðarnar,“ segir borgarstjóri. Skýra þurfi hvaða úrræði verði endurvakin, hverjum framlengt og hverjum ekki.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær að stjórnvöld hefðu kveðið skýrt upp úr með að komið yrði til móts við þá sem yrðu fyrir skertum opnunartíma vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda.

„Nú eru hlutirnir enn og aftur að breytast og ný veira að dreifa sér hraðar en við höfum áður séð. Það kallar sömuleiðis á viðbrögð. Við ætlum bara að vera samkvæm sjálfum okkur í viðbrögðum. Við höfum alltaf brugðist við í samræmi við aðstæður,“ segir Bjarni.

Ríkisstjórnin muni bregðast við ef það þrengdi í búi núna vegna sóttvarnaráðstafana og aðgerða stjórnvalda.

„Þá getur það vel réttlætt að við virkjum að nýju úrræði sem hafa reynst vel.“

Eru hótel þar undir til dæmis?

„Það gæti verið. En nú verðum við aðeins að áskilja okkur rétt til að meta þessa stöðu,“ segir Bjarni Benediktsson.


Tengdar fréttir

Þing­menn vilji vita meira um á­stæður að­gerða hverju sinni

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að þingmenn fái að vita meira um rökin á bak við þær sóttvarnaaðgerðir, sem eru í gildi hverju sinni. Þá telur hann tíma til kominn að tekið sé meira mið af félagslegum- og andlegum áhrifum við ákvarðanatöku um aðgerðir. 

Katrín: Ekki skemmti­leg tíðindi í að­draganda jóla

Hertari sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti annað kvöld og gilda í þrjár vikur. Aldrei hafa fleiri greinst á einum sólarhring eins og í gær. Forsætisráðherra telur líklegt að sóttvarnareglur verði hertar á landamærunum um miðjan janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×