Innlent

Andlát vegna Covid-19

Atli Ísleifsson skrifar
andlat

Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum Covid-19. Um er að ræða fimmta andlátið vegna Covid-19 hérlendis á þessu ári, en alls hafa 43 nú látist af völdum Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Frá þessu segir á vef Landspítalans. Þar segir að 43 sjúklingar liggi nú inni á Landspítala með Covid-19, en þeir voru 45 í gær. Meðalaldur innlagðra er 63 ár. 

Sex eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Fjórir þeirra sem eru á gjörgæslu eru óbólusettir og tveir hafa verið bólusettir að minnsta kosti einu sinni. Sjö voru á gjörgæslu í gær. 

8.284 sjúklingur er í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.588 börn. Í gær var staðan sú að 8.551 sjúklingur var í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.558 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 323 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.

133 starfsmenn Landspítala eru nú í einangrun, en þeir voru 150 í gær. Ekki hafa færri starfsmenn Landspítala verið í einangrun það sem af er ári. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×