Leggja til sérstakan saksóknara kynferðisbrota og að bætur verði dregnar frá launum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. janúar 2022 16:39 Tanja M. Ísfjörð er ein af stjórnarmeðlimum aðgerðarsinnahópsins Öfga. Vísir/Egill Aktívistahópurinn Öfgar leggur til að komið verði á fót embætti sérstaks saksóknara í kynferðisbrotamálum hér á landi. Gagnger endurskoðun þurfi að fara fram á dómskerfinu, rífa það upp með rótum og byggja það upp að nýju.
Þetta kemur fram í umsögn Öfga við þverpólitíska þingsályktunartillögu til innanríkisráðherra um aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðning við þolendur þeirra. Í tillögunni segir að nýjasta bylgja #metoo á haustmánuðum hafi sýnt að stjórnvöld eigi mikið verk fyrir höndum þegar komi að því að uppræta það þjóðfélagsmein sem kynferðisbrot séu. Stjórn Öfga skipa þær Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, Hulda Hrund Sigmundsdóttir, Helga Benediktsdóttir, Tanja M. Ísfjörð, Ólöf Tara Harðardóttir og Ninna Karla Katrínardóttir.Öfgar „Nauðsynlegt er að grípa til róttækra aðgerða til að bregðast við þessu útbreidda og víðtæka vandamáli. Af frásögnum brotaþola má ráða að kerfin sem sett hafa verið upp hafi ítrekað brugðist þolendum og ekki breyst í takti við baráttu undanfarinna ára fyrir réttlæti í málaflokknum. Nauðsynlegt er að setja fram og koma til framkvæmda sérstakri aðgerðaáætlun til að berjast gegn kynferðisbrotum og að efla stuðning við þolendur slíkra brota.“ Þolandi eigi aldrei að þurfa að mæta geranda í dómssal Í umsögn Öfga, sem Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir og Þórhildur Gyða Arnarsdóttir skrifa undir, er að finna tillögur í sjö liðum að breytingum auk almennra athugasemd með frekari tillögum. Verði lögreglan styrkt þurfi að tryggja að starfsfólk hafi sérstaka þekkingu á málaflokknum. Þá þurfi að stuðla að bættri málsmeðferð. Dragi þolandi kæru sína til baka en saksóknari telur málið líklegt til sakfellingar þá eigi ekki að vera hægt að skikka þolanda til að mæta geranda í dómssal. „Yfir höfuð ætti þolandi aldrei að þurfa að mæta geranda sínum í dómsal ef hann treystir sér ekki til þess. Það ætti að styrkja mál þolanda ef gerandinn hefur áður verið kærður fyrir kynferðisofbeldi, óháð því hvernig það mál fór. Ef um ítrekuð brot er að ræða ætti það að hafa vægi á núverandi ákærur í hverju tilfelli fyrir sig.“ Þá er hvatt til þess að frjáls félagasamtök fái viðurkenningu í formi styrkja sem væru í fjárlögum. Bætur dregnar af launum Öfgar segja að rannsóknir í kynferðisbrotum þurfi að vera að öllu leyti gerðar á forsendum þolenda. Rannsóknina þurfi að gera í samráði við félagasamtök á borð við Stígamót, Bjarkahlíð og Kvennaathvarfið. Þá þurfi kynjafræðingar og aðrir sem hafa þekkingu á málaflokknum. „Einnig er mikilvægt að rannsóknin sé unnin af sérfræðingum sem eru þjálfaðir í að taka viðtöl við þolendur ofbeldis.“ Þórhildur Gyða Arnarsdóttir skrifar undir umsögnina. Hún steig fram á síðasta ári og greindi frá ofbeldismáli innan knattspyrnuhreyfingarinnar.Vísir Þá er tillaga um að koma upp kerfi sem svipar til meðlagsgreiðslna. Þær verði að fara í gegnum þriðja aðila, til dæmis ríkissjóð, svo þolandi sé laus við að sjá nafn geranda í heimabankanum. „Einnig væri hægt að líkja eftir skattkerfinu - þar sem bæturnar yrðu dregnar af launum geranda og lagðar inn á þolanda.“ Kerfi frá körlum fyrir karla Þá segir í almennum athugasemdum Öfga að eitt frumvarp leysi ekki vandann sem þjóðin standi frammi fyrir. Skoða þurfi málaflokkinn og kerfið í heild sinni. „Kerfið er búið til af körlum fyrir karla, það er ekkert rými fyrir fólk sem skilgreinir sig ekki karlkyns. Kerfið er karllægt og kemur það niður á þolendum kynbundins ofbeldis. Í rauninni þyrfti að fara fram gagnger endurskoðun á dómskerfinu í heild sinni, rífa það upp með rótum og byggja upp á nýtt.“ Hægt væri að koma á legg embætti sérstaks saksóknara í kynferðisbrotamálum. „Þar yrði ráðið inn fólk með kynjafræðiþekkingu, reynslu af því að vinna með þolendum, sálfræðingar sem sérhæfa sig í áfallastreituröskun og fleiri sem hafa sérstaka þekkingu í málaflokknum. Hægt væri að halda fund þar sem fólk sem lætur sig málið varða ásamt sérfræðingum í kynferðisbrotamálum koma saman. Á þeim fundi væri hægt að draga fram hluti sem betur mættu fara.“ Umsögnina í heild má sjá hér að neðan. Tengd skjöl Ofgar_umsognPDF103KBSækja skjal
Kynferðisofbeldi MeToo Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Erlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Innlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Erlent Hefur leit að nýjum saksóknara Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Sjá meira