Töluverð bið er nú eftir niðurstöðum úr PCR-sýnatökum en dæmi eru um að fólk þurfi að bíða í meira en tvo sólarhringa eftir niðurstöðum.
Guðrún Svanborg Hauksdóttir, yfirlæknir sýkla og veirufræðideildar Landspítalans, segir að biðtíminn eftir niðurstöðu hafi undanfarið verið að lengjast hægt og bítandi vegna mikils álags.
Deildin ræður við að greina um fimm þúsund sýni á sólarhring en undanfarna daga hafa borist um eða yfir sjö þúsund sýni á sólarhring. Til að deildin gæti ráðið við fleiri sýni þyrfti að fá fleiri tæki og ráða talsvert fleiri starfsmenn.
Að sögn Guðrúnar hefur í nokkurn tíma ekki tekist að vinna samdægurs þau sýni sem berast og í morgun átti til að mynda enn eftir að greina um sex til sjö þúsund sýni frá deginum áður. Þá var einnig enn verið að greina sýni frá 8. febrúar.
„Nú má gera ráð fyrir því að biðtíminn sé tveir sólarhringar, eða jafnvel meira, en berist áfram jafn mörg sýni og undanfarið er því miður hætt við því að biðtíminn lengist hratt með hverjum deginum sem líður,“ segir Guðrún í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.
Hraðpróf verði notuð í auknum mæli
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við fréttastofu í morgun að nauðsynlegt væri að bregðast við.
„Það er mjög óþægilegt fyrir fólk að bíða svona lengi en við erum hugsanlega að breyta sýnatökunum, setja ákveðið þak á sýnatökur og nota þá frekar hraðgreiningarpróf,“ sagði Þórólfur og vísaði til þess að fólk yrði sent í hraðpróf þegar að ákveðinn fjöldi PCR sýna hefur verið tekinn á einum degi.
Undanfarna tvo daga hefur fjöldi jákvæðra sýna farið yfir tvö þúsund á sólarhring og er fólk látið vita að allt að 48 klukkustundir, og jafnvel meira, geti liðið þar til fólk fær svar vegna mikils álags. Íslensk erfðagreining hafði aðstoðað við að greina sýni fyrr á árinu en hefur nú hætt því.
„Við þurfum að bregðast einhvern veginn við og það er hugsanlegt að við þurfum að nýta meira hraðgreiningarpróf en áður til að greina fólk,“ sagði Þórólfur.
Afléttingar geti einnig hjálpað til
Að því er kemur fram í tilkynningu á covid.is hefur breytingunni nú verið hrint í framkvæmd en á Suðurlandsbraut verður í boði að fara í hraðpróf þegar hámarks PCR sýnafjölda fyrir daginn er náð.
Ef hraðpróf reynist jákvætt er áfram skylda að staðfesta það með PCR en hins vegar má telja daga í einangrun frá jákvæðu hraðprófi. Fólk er beðið um að halda sig til hlés eftir PCR próf en einangrun verður talin frá sýnatökudegi þó niðurstaða berist síðar.
Þórólfur telur einnig mögulegt að afléttingar sem tilkynntar verða á morgun muni létta á sýnatökum.
Guðrún segir að allt sem yrði til þess að fækka sýnum yrði til hjálpar en aðspurð um hvort nauðsyn væri á aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar á ný segir hún það í höndum sóttvarnalæknis en ekki spítalans.