Innlent

Röskva vann aftur stórsigur en missir einn fulltrúa

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðs fóru rafrænt fram í dag og í gær. 
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðs fóru rafrænt fram í dag og í gær.  Vísir/Vilhelm

Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, tryggði sér fimmtán fulltrúa af sautján í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands en úrslitin voru tilkynnt í kvöld. Vaka – hagsmunafélag stúdenta, bætir við sig einum fulltrúa milli ára.

Kosning til Stúdentaráðs HÍ fór fram í gær og í dag en úrslitin voru tilkynnt á tólfta tímanum í kvöld. Röskva vann einnig kosningar til háskólaráðs og fékk kjörna tvo fulltrúa nemenda af tveimur í ráðið. Varamenn í háskólaráði eru einnig báðir úr röðum Röskvu.

Röskva náði öllum fulltrúum á þremur sviðum, þrjá á hugvísindasviði, þar sem Vaka kom ekki með framboð á því sviði, þrjá á verkfræði- og náttúruvísindasviði, og þrjá á heilbrigðisvísindasviði.

Vaka heldur sínum fulltrúa á félagsvísindasviði en Röskva er þar með fjóra fulltrúa. Þá bætir Vaka við sig einum fulltrúa á menntavísindasviði, þar sem Röskva er með tvo fulltrúa.

Heildarkjörsókn í kosningunum til Stúdentaráðs í ár var 21,7 prósent þar sem 2.626 greiddu atkvæði, og 17,95 prósent til háskólaráðs, þar sem 2.572 greiddu atkvæði.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig fulltrúarnir raðast.

Eftirfarandi hlutu kjör á Hugvísindasviði:

  1. Rakel Anna Boulter, Röskva
  2. Draumey Ósk Ómarsdóttir, Röskva
  3. Magnús Orri Aðalsteinnson, Röskva

Félagsvísindasvið - Kjörsókn var 22,79%

  1.  Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, Röskva
  2.  Viktor Ágústsson, Röskva
  3.  Dagur Kárason, Vaka
  4.  Diljá Ingólfsdóttir, Röskva
  5.  Elías Snær Torfason, Röskva

Menntavísindasvið - Kjörsókn var 15,13%

  1. Auður Eir Sigurðardóttir, Röskva
  2. Ísak Kárason, Röskva
  3. Ísabella Rún Jósefsdóttir, Vaka

Verkfræði- og náttúruvísindasvið - Kjörsókn var 29,27%

  1.  Brynhildur R Þorbjarnardóttir, Röskva
  2.  Sigurþór Maggi Snorrason, Röskva
  3.  Dagmar Óladóttir, Röskva

Heilbrigðisvísindasvið - Kjörsókn var 25,52%

  1.  Andri Már Tómasson, Röskva
  2.  Sigríður Helga Ólafsdóttir
  3.  Dagný Þóra Óskarsdóttir, Röskva

Háskólaráð - Kjörsókn var 17,95%

  • Brynhildur K Ásgeirsdóttir, Röskva
  • Katrín Björk Kristjánsdóttir, Röskva

Varamenn í haskólaráði í 3. og 4. sæti:

  • Rebekka Karlsdóttir, Röskva
  • Ingvar Þóroddsson, Röskva

Tengdar fréttir

Stór­sigur Röskvu tryggði sex­tán full­trúa af sau­tján

Röskva – samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands vann stórsigur í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands nú í kvöld. Röskva náði inn 16 fulltrúum í ráðið af alls 17. Hin stúdentahreyfingin í framboði, Vaka – hagsmunafélag stúdenta, fékk því einn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×