Skoðun

Frí­stunda­starfið í Reykja­vík

Bryngeir A. Bryngeirsson skrifar

Sveitarfélögin á Íslandi bjóða almennt upp á víðfeðma og góða þjónustu. Sumir þættir þjónustunnar komast reglulega í umræðuna í kringum kosningar og mætti þar til dæmis nefna skólakerfið og félagsþjónustuna. Það er fátt eðlilegra en að ræða þau mikilvægu málefni og álitaefni sem snúa að þeim málaflokkum en því miður er það þó þannig að ekki allir málaflokkar komast að í umræðunni. Einn þeirra málaflokka sem verður oft út undan er frístundastarfið sem er einn af skærustu demöntunum í krúnu höfuðborgarinnar.

Það er erfitt að gera of mikið úr mikilvægi frístundastarfsins. Á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum borgarinnar er gríðarlega gott og mikið starf unnið. Þar eru upprennandi borgarar fræddir og slípaðir til í lýðræðislegum vinnubrögðum, samskiptafærni og samkennd svo eitthvað sé nefnt. Þetta frábæra starf fer svo fram undir handleiðslu hæfileikaríkra einstaklinga sem endurspegla dásamlega fjölbreytni mannlífsins í höfuðborginni. Til þess að bæta um betur þá fer starfið fram í vönduðu og faglegu umhverfi þar sem gæðaviðmið og verkferlar vísa veginn. Er þá enn ónefndur sá metnaður og sú þróun sem eiga sér stað á þessum vettvangi. Það er í raun engum ofsögum sagt að frístundastarfið í Reykjavík sé á heimsmælikvarða. Máli mínu til stuðnings bendi ég á þá miklu áherslu sem lögð er á barnalýðræði á frístundaheimilunum og þá góðu og fallegu þróun sem er að eiga sér stað með tilkomu Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar og skyldra verkefna.

Sem reynslumikill fagmaður í frístundastarfinu tel ég ekki nokkurn vafa leika á því að öll börn eiga að geta notið starfseminnar óháð efnahagsstöðu. En því miður er staðan ekki sú. Efnaminni fjölskyldur sem þurfa að reiða á frístundakortið geta til að mynda ekki notað það til þess að greiða niður sumarstarf frístundaheimilanna. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði viljum breyta þessu. Við viljum þróa frístundakortið áfram til þess að gera það skilvirkara þannig að það sinni betur þeim tilgangi sem til er ætlast. Við erum stolt af því dýrmæta starfi sem fram fer á frístundaheimilunum og í félagsmiðstöðvunum og við viljum gjarnan lyfta því á enn hærra stig á komandi kjörtímabili. Atkvæði greitt VG er atkvæði greitt frístundastarfi í Reykjavík.

Höfundur skipar 8. sæti á lista VG í Reykjavík




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×