Skrifað undir verksamning um vegagerð í Teigsskógi Kristján Már Unnarsson skrifar 10. maí 2022 14:00 Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks, og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri handsala ríflega 1,2 milljarða króna verksamning að lokinni undirritun. Vegagerðin/G. Pétur Matthíasson Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu í gær verksamning um lagningu ellefu kílómetra kafla um Teigsskóg. Borgarverk átti lægsta boð í verkið, upp á 1.235 milljónir króna, sem reyndist um tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun. „
Við byrjum á að koma okkur fyrir, mæta með tæki og búnað á staðinn, í síðustu viku maímánaðar. Okkar áætlun miðar við að byrja á því 24. maí,“ sagði Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks, í dag. Úr Teigsskógi við Þorskafjörð. Þar er nú þegar gamall vegslóði.KMU Sjálf vegavinnan hefst þó ekki fyrr en í annarri viku júnímánaðar, að sögn Óskars. Byrjað verður á því að taka upp torf og gróður úr vegstæðinu og leggja það hliðar til síðari nota til að þekja jarðvegssárin. „Það verður svo um miðjan júní sem við byrjum að sprengja og keyra út efni,“ sagði Óskar. Hér sést hvernig fyrirhugaður vegur mun liggja út með Þorskafirði. Til hægri sést hvar núverandi vegur hlykkjast upp á Hjallaháls.Vegagerðin Þessi áfangi endurbóta Vestfjarðavegar um Gufudalssveit nær milli Hallsteinsness og Þórisstaða í utanverðum Þorskafirði og á hann að klárast haustið 2023. Óskar gerir ráð fyrir að vera með 15 til 20 manns að jafnaði í verkinu og að vinnubúðir verði á Hallsteinsnesi. Tilboðin í verkið voru opnuð þann 22. mars og þá var rætt við framkvæmdastjóra Borgarverks í þessari frétt Stöðvar 2:
Teigsskógur Vegagerð Reykhólahreppur Skipulag Umhverfismál Umferðaröryggi Tengdar fréttir Lægstbjóðandi vonast til að byrja í Teigsskógi í vor Tilboð í umdeilda vegagerð um Teigsskóg voru opnuð í dag. Lægsta boð reyndist um tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun, kom frá Borgarverki og hljóðar upp á ríflega 1,2 milljarða króna. 22. mars 2022 21:14 Verkefnisstjórinn býst ekki við mótmælum í Teigsskógi Verkefnisstjóri Vegagerðarinnar í Gufudalssveit býst ekki við að mótmælendur hlekki sig við jarðýtur þegar vegagerð hefst um Teigsskóg. Búið sé að fara vel yfir málið og verkið verði unnið í nánu samráði við Náttúrustofu Vestfjarða og sveitarfélagið Reykhólahrepp. 16. febrúar 2022 18:32 Vegur um Teigsskóg á að vera tilbúinn í október á næsta ári Vegagerðin hefur formlega birt útboðsauglýsingu um nýbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á kaflanum millli Þórisstaða og Hallsteinsness. Þetta er sá kafli sem liggur um hinn umdeilda Teigsskóg í utanverðum Þorskafirði. 16. febrúar 2022 10:40 Sögunni endalausu um Teigsskóg virðist lokið með sögulegum samningi Það vakti athygli margra síðdegis í gær að á meðan löngum ríkisstjórnarfundi um minnisblað sóttvarnalæknis stóð greindi samgönguráðherra frá langþráðum áfanga í vegagerð hér á landi. Vegalagning um Gufudalssveit væri fram undan en deilur um svæðið og nýjan veg þar um hafa staðið í tvo áratugi. Sagan endalausa virðist ætla að enda eftir allt saman. 24. júlí 2021 08:29 Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44 Byrjaðir á fyrsta áfanga vegar um Gufudalssveit Vinna er hafin við sjö kílómetra vegagerð í Gufudalssveit en þetta er fyrsti áfangi hins umdeilda Teigsskógarvegar. Í sveitinni er því fagnað að verkið skuli hafið. Myndir frá vegagerðinni mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. 20. nóvember 2020 23:00 Mest lesið Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Viðskipti innlent Tilkynna breytingar á lánaframboði Viðskipti innlent Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Viðskipti innlent Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Viðskipti innlent Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Viðskipti innlent Bein útsending: Listi Framúrskarandi fyrirtækja birtur Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Viðskipti innlent Högnuðust um tæpa sjö milljarða Viðskipti innlent Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Viðskipti innlent Verðbólguþróunin áhyggjuefni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust um tæpa sjö milljarða Bein útsending: Listi Framúrskarandi fyrirtækja birtur Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Ístak bauð best í frágang á nýja Landspítalanum Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Segja þingmann draga upp skakka mynd af stöðu nýsköpunar Eigandi skrifstofu í Kringlunni þarf að borga fyrir auglýsingar Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Enn meiri veikleikar í samkeppnishæfni Íslands en ESB Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Mun leiða svið markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Advania Finna meira gull á Grænlandi Jónas Már til Réttar „Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Hætt við að vextir hækki „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Sjá meira
Lægstbjóðandi vonast til að byrja í Teigsskógi í vor Tilboð í umdeilda vegagerð um Teigsskóg voru opnuð í dag. Lægsta boð reyndist um tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun, kom frá Borgarverki og hljóðar upp á ríflega 1,2 milljarða króna. 22. mars 2022 21:14
Verkefnisstjórinn býst ekki við mótmælum í Teigsskógi Verkefnisstjóri Vegagerðarinnar í Gufudalssveit býst ekki við að mótmælendur hlekki sig við jarðýtur þegar vegagerð hefst um Teigsskóg. Búið sé að fara vel yfir málið og verkið verði unnið í nánu samráði við Náttúrustofu Vestfjarða og sveitarfélagið Reykhólahrepp. 16. febrúar 2022 18:32
Vegur um Teigsskóg á að vera tilbúinn í október á næsta ári Vegagerðin hefur formlega birt útboðsauglýsingu um nýbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á kaflanum millli Þórisstaða og Hallsteinsness. Þetta er sá kafli sem liggur um hinn umdeilda Teigsskóg í utanverðum Þorskafirði. 16. febrúar 2022 10:40
Sögunni endalausu um Teigsskóg virðist lokið með sögulegum samningi Það vakti athygli margra síðdegis í gær að á meðan löngum ríkisstjórnarfundi um minnisblað sóttvarnalæknis stóð greindi samgönguráðherra frá langþráðum áfanga í vegagerð hér á landi. Vegalagning um Gufudalssveit væri fram undan en deilur um svæðið og nýjan veg þar um hafa staðið í tvo áratugi. Sagan endalausa virðist ætla að enda eftir allt saman. 24. júlí 2021 08:29
Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44
Byrjaðir á fyrsta áfanga vegar um Gufudalssveit Vinna er hafin við sjö kílómetra vegagerð í Gufudalssveit en þetta er fyrsti áfangi hins umdeilda Teigsskógarvegar. Í sveitinni er því fagnað að verkið skuli hafið. Myndir frá vegagerðinni mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. 20. nóvember 2020 23:00