Gúrúinn Gunnar Dan Wiium skrifar 15. maí 2022 18:01 Swett. Í ljósi umræðna síðustu daga og vikna í fjölmiðlum um hina andlegu crazy, perra gúrús langar mig að henda í einn svona pistill því tengt. Mér finnst nefnilega svolítið ílla vegið að svo stórum hóp fólks sem starfar innan þessa geira af mikilli auðmýkt og af hreinum ásetning. Ég er ekki að halda því fram að þær sögur sem ég hef heyrt upp á síðkastið ekki séu réttar en ljósinu skal einnig beint að þeim sem starfa hafa í þessum bransa í áratugi þess vegna og á óaðfinnalegan hátt. Það var myrkur í tjaldinu fyrir utan glóandi hnullunga, þeir ná 800 gráðum og stundum klofna þeir af hita. Ég er með tóman maga því ég fasta alltaf fyrir swett. Ég er í swetttjaldi með vinum mínum sem og ókunnugum, mikið 12 spora fólk. 12 spora fólk er mjög áberandi í þessari senu, af ástæðu því okkur er um mun að komast í kjarnann án þess að troða í okkur eitri í örvæntingu, það hefur verið reynt oftast með hörmulegum afleiðingum. Swettið er frekar formfast enda ekki mikið breyst á þeim 30 árum sem það hefur verið iðkað á Íslandi. Dakota indjánar komu með það til okkar og skildu svo eftir. Lengi vel fórum við í Elliðarárdalinn til hommana. Við dönsuðum við Kælí og Madonnu í klukkutíma undir discokúlu og með árugleraugu fyrir swett. Svo komu fleiri swettarar, allir með sitt einkenni, sinn stíl en kjarninn sá sami. Inn í athöfnina fór að koma tjáningarhringur, bættist við dakóta-möntrurnar. Hún kom með 12 spora fólkinu, 12 spora fólkið verður að fá að tala um sjálft sig, um hvernig því líður, hvað það upplifir, hverjar óskirnar eru, vonir og sársauki. Við 12 spora fólk erum sjálfhverf og eigngjörn oft á tíðum, þess vegna höfum við lent í veseni, því við erum ég-hugsandi og því þurfum við að tjá okkur í myrkrinu. Orðið gengur hringinn í einum af þessum fjórum lotum, öllum er frjálst að tjá sig eða ekki. Einn afþakkar og það er ekkert nema sjálfsagt, flestir eru þakklátir, spenntir fyrir sínu fyrsta swetti, aðrir vilja sleppa meira stjórn, opna greipar sínar og verða móttækilegri fyrir lífinu samkvæmt skilmálum lífsins í stað sinna eigin. Orðið kemur að mér og ég má velja hvort ég tjái mig eða ekki. Ég hef alltaf tjáð mig, verið meir og viðkvæmur, talað um tilfinningar mínar og traumað sem ég oftast hef skapað sjálfur í lífi mínu á einhvern hátt með mínum eigin óþroskuðu viðbrögðum og eiginhagsmunakennd. Í gær lá ég bara og svitnaði í myrkrinu, engin andleg reynsla, bara brosandi í myrkrinu yfir fáránleika lífsins. Lífið er bara eitt stórt rugl og ég er í því með allt mitt rosalega stöff. Ég tjáði mig því samkvæmt, þetta er bara eitt stórt eftirpartý og megi mátturinn færa mér að mér verði meira drull, mér er drull og ég vil bara fá að lifa í friði og deyja í friði. Ég vil amerískan sportbíl, mig langar að keyra í Bónus á Dodge Challenger með svona spoiler að framan en ekki aftan, bensín er dýrt en mér er drull, fólk talar um praktík en mér er drull. Það er ekkert hægt að flatmaga yfir fokking Júróvision, sýndarleik Evrópu og tala um praktík, mér er drull. En swettið sem ég fór í á Spirit farm í gær var gott, stjórnað af einum auðmjúkum sem hafði 27 ára reynslu af svitahofum. Hann reyndi ekki að pota fingrum sínum í rassgatið á neinum, hann bauð okkur ekkert hugvíkkandi, bara súpu og húmmus ásamt mjúkri nærveru sem geislaði af honum í formi þétts ljóseindaflæðis. Ég hef aldrei lent í perrum eða vitleysingum í þessum ævintýra ferðum mínum síðustu 15 árin. Ég reyndar bý yfir dómgreind til að sjá ruglið ef það myndi birtast mér og styrk til að standa upp í miðri athöfn ef svo bæri við og fokka mér út, ég ber nefnilega ábyrgð, ég verð að passa upp á mig, ég set mig ekki algjörlega í hendurnar á ókunnugu fólki því ekkert fólk er að fara að stjórna mér inn í lausn af neinu tagi. Til að loka þessu samhengislausa röfli í mér langar mig bara að biðja fólk um að axla ábyrgð og sjá hvenær JÁ á við og hvenær NEI á við. Við þurfum ekki og eigum ekki að láta bjóða okkur rugl eða glepjast af grunnum sálfræðihernaði fávita í kuflum. Sjáum hverjir eru ekta og hverjir ekki, það er í alvörunni ekki svo erfitt. Namaste Höfundur starfar sem smíðakennari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun 50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni? Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Íslenzkir sambandsríkissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Garðurinn okkar fyllist af illgresi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Nýtt landsframlag – og hvað svo? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar Sjá meira
Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar