Blikakonur verða í neðri hluta Bestu deildarinnar ef þær tapa fyrir Val í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2022 14:31 Hildur Antonsdóttir og félagar í Breiðabliksliðinu þurfa sigur í kvöld ætli þær að vera með í titilbaráttunni í sumar. Vísir/Vilhelm Eftir kvöldið í kvöld þá verður búið að spila einn þriðjung af Íslandsmóti kvenna í fótbolta en sjöttu umferð Bestu deilda kvenna lýkur þá með stórleik Breiðabliks og Vals á Kópavogsvellinum. Valskonur komast aftur í toppsætið með sigri en heimakonur duttu alla leið niður í sjötta sætið eftir úrslitin í gærkvöldi. Þróttarar unnu í Keflavík og komust á toppinn, Stjarnan vann Selfoss og komst upp fyrir Breiðablik og Eyjakonur fóru líka upp fyrir Breiðablik eftir ótrúlegan 5-4 endurkomusigur á Þór/KA út í Eyjum. Tapi Blikar því leiknum í kvöld verða þær í neðri hluta deildarinnar þegar einum þriðja af mótinu er lokið. Leikur Breiðabliks og Vals hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 18.45 og eftir leikinn verða síðan Bestu mörkin á dagskrá þar sem verður farið yfir alla leiki sjöttu umferðarinnar. Oftar en ekki hafa innbyrðis leikir Vals og Breiðabliks verið úrslitaleikir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en nú þurfa Blikakonur hreinlega að vinna til að halda sig með í baráttunni. Vinni Valsliðið í kvöld þá eru þær komnar sex stigum á undan Blikum og Blikar væru um leik búnir að tapa jafnmörgum leikjum og þeir hafa unnið. Þetta kemur í kjölfar þess að Blikakonur hafa tapað bæði fyrir Keflavík og fyrir ÍBV í síðustu fjórum leikjum sínum. Fari allt á versta veg fyrir Blikakonur í kvöld þá yrði það i fyrsta skipti í sögu tíu liða deildar þar sem þær væri í neðri hluta deildarinnar þegar svo langt er liðið á mótið. Sæti Breiðabliksliðsins eftir sex umferðir í sögu 10 liða deildar: 2021 - 3. sæti (12 stig) 2020 - 1. sæti (18 stig) 2019 - 2. sæti (18 stig) 2018 - 1. sæti (18 stig) 2017 - 3. sæti (15 stig) 2016 - 2. sæti (14 stig) 2015 - 1. sæti (16 stig) 2014 - 4. sæti (10 stig) 2013 - 2. sæti (15 stig) 2012 - 4. sæti (11 stig) 2011 - 5. sæti (7 stig) 2010 - 2. sæti (11 stig) 2009 - 4. sæti (13 stig) 2008 - 4. sæti (7 stig) Samantekt: 3 sinnum í efsta sætinu 7 sinnum í efstu tveimur sætunum 9 sinnum á topp þrjú 14 sinnum í efri hluta 0 sinnum í neðri hluta Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Besta deild karla Breiðablik Valur Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira
Valskonur komast aftur í toppsætið með sigri en heimakonur duttu alla leið niður í sjötta sætið eftir úrslitin í gærkvöldi. Þróttarar unnu í Keflavík og komust á toppinn, Stjarnan vann Selfoss og komst upp fyrir Breiðablik og Eyjakonur fóru líka upp fyrir Breiðablik eftir ótrúlegan 5-4 endurkomusigur á Þór/KA út í Eyjum. Tapi Blikar því leiknum í kvöld verða þær í neðri hluta deildarinnar þegar einum þriðja af mótinu er lokið. Leikur Breiðabliks og Vals hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 18.45 og eftir leikinn verða síðan Bestu mörkin á dagskrá þar sem verður farið yfir alla leiki sjöttu umferðarinnar. Oftar en ekki hafa innbyrðis leikir Vals og Breiðabliks verið úrslitaleikir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en nú þurfa Blikakonur hreinlega að vinna til að halda sig með í baráttunni. Vinni Valsliðið í kvöld þá eru þær komnar sex stigum á undan Blikum og Blikar væru um leik búnir að tapa jafnmörgum leikjum og þeir hafa unnið. Þetta kemur í kjölfar þess að Blikakonur hafa tapað bæði fyrir Keflavík og fyrir ÍBV í síðustu fjórum leikjum sínum. Fari allt á versta veg fyrir Blikakonur í kvöld þá yrði það i fyrsta skipti í sögu tíu liða deildar þar sem þær væri í neðri hluta deildarinnar þegar svo langt er liðið á mótið. Sæti Breiðabliksliðsins eftir sex umferðir í sögu 10 liða deildar: 2021 - 3. sæti (12 stig) 2020 - 1. sæti (18 stig) 2019 - 2. sæti (18 stig) 2018 - 1. sæti (18 stig) 2017 - 3. sæti (15 stig) 2016 - 2. sæti (14 stig) 2015 - 1. sæti (16 stig) 2014 - 4. sæti (10 stig) 2013 - 2. sæti (15 stig) 2012 - 4. sæti (11 stig) 2011 - 5. sæti (7 stig) 2010 - 2. sæti (11 stig) 2009 - 4. sæti (13 stig) 2008 - 4. sæti (7 stig) Samantekt: 3 sinnum í efsta sætinu 7 sinnum í efstu tveimur sætunum 9 sinnum á topp þrjú 14 sinnum í efri hluta 0 sinnum í neðri hluta Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Sæti Breiðabliksliðsins eftir sex umferðir í sögu 10 liða deildar: 2021 - 3. sæti (12 stig) 2020 - 1. sæti (18 stig) 2019 - 2. sæti (18 stig) 2018 - 1. sæti (18 stig) 2017 - 3. sæti (15 stig) 2016 - 2. sæti (14 stig) 2015 - 1. sæti (16 stig) 2014 - 4. sæti (10 stig) 2013 - 2. sæti (15 stig) 2012 - 4. sæti (11 stig) 2011 - 5. sæti (7 stig) 2010 - 2. sæti (11 stig) 2009 - 4. sæti (13 stig) 2008 - 4. sæti (7 stig) Samantekt: 3 sinnum í efsta sætinu 7 sinnum í efstu tveimur sætunum 9 sinnum á topp þrjú 14 sinnum í efri hluta 0 sinnum í neðri hluta
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deild karla Breiðablik Valur Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira