Fótbolti

Berglind lék allan leikinn er Örebro komst aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Berglind Rós Ágústsdóttir í leik með Örebro.
Berglind Rós Ágústsdóttir í leik með Örebro. Örebro

Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar í liði Örebro er liðið komst aftur á sigurbraut með 1-0 sigri gegn Eskilstuna í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Fyrir leikinn höfðu Berglind og stöllur hennar tapað þremur deildarleikjum í röð og því var sigurinn kærkominn.

Eina mark leiksins skoraði Emma Ostlund þegar hún varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 35. mínútu og niðurstaðan því 1-0 sigur Örebro.

Sigurinn lyfti Örebro úr tíunda sæti deildarinnar og upp í það sjöunda. Liðið er nú með 15 stig eftir 11 leiki, fjórum stigum minna en Eskilstuna sem situr í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×