Innlent

Dregið úr þjónustu yfir sumartímann

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að á hverju sumri þurfi að draga úr þjónustu vegna sumarfría.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að á hverju sumri þurfi að draga úr þjónustu vegna sumarfría. Vísir/Sigurjón

Draga þarf úr þjónustu á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins í sumar vegna mönnunarvanda. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni segir öllum sem veikjast áfram sinnt þrátt fyrir að þjónustan sé breytt.

Það fyrirkomulag hefur verið tekið upp á nokkrum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu yfir sumartímann að ekki er lengur hægt að panta tíma hjá lækni nema samdægurs. Þetta hefur mælst misvel fyrir hjá þeim hafa þurft að leita til heilsugæslunnar. 

Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni segir mönnun skýra þetta.

„Það hefur alltaf verið þannig að mönnunin kannski fer niður í svona um það bil helming á sumrin. Það er bara það sem er. Fólk skiptir sín á milli. Það eru bara gerðar ráðstafanir til að manna svona helstu þá mikilvægustu pósta og svo er svona ýmislegt annað sem má bíða og þá látum við það bíða.“

Hún segir marga hafa unnið mikið á meðan kórónuveirufaraldurinn gekk yfir og eiga uppsafnað frí.

„Það er alveg uppsöfnuð fríþörf og fólk á náttúrulega sinn frírétt og fólk er mjög lúið eftir þennan vetur það vetur. Það verður bara að viðurkennast.“

Hún segir alveg skýrt öllum sem þurfa aðstoð sé sinnt.

„Það er áfram opið á öllum stöðvum alla daga og það er alls staðar bæði dagvakt þar sem hægt er að koma án tímabókunar og ef erindið þolir ekki bið. Svo höfum við líka lagt áherslu á við stöðvar að þær séu meira bara með samdægurstíma yfir hásumarið. Þannig að þá er á hverjum einasta degi hægt að fá töluvert tímaframboð á hverri einustu stöð á hverjum einasta degi. Þannig það verða engin vandræði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×