Innlent

Hægt að ná hæstu tindum ef fólk vinnur saman í hópflæði

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jef Van den Hout doktor í sálfræði við tækniháskólann í Eindhoven í Hollandi segir að ef svokallað hópflæði næst í hóp geti hann náð undraverðum árangri. Í sameiningu geti fólk náð toppum sem það gæti ekki annars.
Jef Van den Hout doktor í sálfræði við tækniháskólann í Eindhoven í Hollandi segir að ef svokallað hópflæði næst í hóp geti hann náð undraverðum árangri. Í sameiningu geti fólk náð toppum sem það gæti ekki annars. Vísir/Ívar

Doktor í sálfræði segir að með því að kenna fólki nýja nálgun í samvinnu og hópvinnu sé hægt að ná fram mun betri afköstum og starfsánægju á vinnustöðum. Í flóknari verkefnum sé ákjósanlegast að hafa ekki fleiri en 4-6 í hópi.

Jef Van den Hout doktor í sálfræði við tækniháskólann í Eindhoven í Hollandi segir að með því að kenna fólki ákveðnar aðferðir í hópavinnu sé hægt að ná fram hámarksafköstum og aukinni starfsgleði. Hann er sérfræðingur í fyrirbæri sem nefnist á ensku Team Flow sem þýða má sem hópflæði.  Ef það náist í samstarfi fólks  geti hópurinn  náð undraverðum árangri. Í sameiningu geti fólk náð toppum sem það gæti ekki annars. 

„Hópflæði er það besta í aðstæðum þar sem samvinna fer fram. Þá nýtur hver maður þess sem hann gerir og hópurinn nær á sama tíma sínu besta fram,“ segir Jef. 

Jef er meðal fyrirlesara á ráðstefnu sem fer nú fram í Hörpu um Jákvæða sálfræði þar sem hátt í sjö hundruð manns taka þátt.

Hann hefur kennt hópum að nota þessa aðferðafræði með góðum árangri og segir mikilvægt að í upphafi marki hópurinn  sameiginlega sýn og markmið.

„Hópurinn þarf að hafa krefjandi markmið. Það þarf að skipta verkefnum niður á einstaklinga í hópnum svo hver og einn geti nýtt sinn persónulega styrk. Brýnt er að geta átt opin tjáskipti svo fólk upplifi sig í öruggu umhverfi þar sem það er í lagi að gera mistök. Ef mistök verða þá þarf  viðhorfið að vera að það eigi að læra af þeim en alls ekki skamma viðkomandi,“ segir hann. 

Jef segir hægt að þjálfa þessa hæfni hjá fólki. 

„Meðlimir hópsins þurfa að fá þjálfun í að vinna saman á skilvirkan, árangursríkan og skemmtilegan hátt,“ segir Jef.

Hann segir að fjöldi í hóp geti líka haft áhrif á gæði hans.

„Það er oft talað um að fjöldi í hóp megi ekki vera fleiri en sjö. Ef um er að ræða flókin verkefni er gott að vera ekki í stærri hópi en 4-6 manna. Í Hollandi eru teymi í heilbrigðisþjónustu takmörkuð við níu manns,“ segir Jef. 


Tengdar fréttir

Telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf og mælir með núvitund

Einn virtasti prófessor samtímans í sálfræði og geðlækningum telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf. Hann bendir á að rannsóknir hafi sýnt að dagleg hugleiðsla í stuttan tíma geti haft mun jákvæðari áhrif á andlega heilsu fólks til lengri tíma en lyf.

Þurfi að endurhugsa geðheilbrigðismálin

Sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu segir mikilvægt að bregðast við aukinni vanlíðan hjá Íslendingum. Það skjóti skökku við að niðurgreiða aðeins þunglyndis-og kvíðalyf en ekki sálfræðiþjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×