„Það er greinilega vilji meðal þingmanna Íhaldsflokksins að það eigi að taka við nýr leiðtogi og þar með nýr forsætisráðherra,“ sagði Johnson fyrir utan Downingstræti tíu í dag. „Ég veit að það verða margir sem verða fegnir, og mögulega nokkur fjöldi sem verður fyrir vonbrigðum. Ég vil að þið vitið hversu sorgmæddur ég er að kveðja besta starf í heimi.“
Hann sagðist harma það að geta ekki fylgt eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í stórum málum á borð við viðbrögð við stríðinu í Úkraínu en óskaði nýjum leiðtoga góðs gengis. Að sögn Johnsons hefst ferlið við val á nýjum leiðtoga strax en sjálfur mun hann sitja áfram sem forsætisráðherra, að öllum líkindum fram á haust.
„Ég veit að jafnvel þó að hlutirnir virðast kannski myrkir núna, þá er framtíð okkar saman gulls ígildi,“ sagði Johnson.
Í heildina hafa 59 ráðherrar og embættismenn sagt af sér frá því á þriðjudagskvöld. Þar af eru fimm hátt settir ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar, fjármála-, heilbrigðis- og menntamálaráðherrar og ráðherrar Norður Írlands og Wales. Þá rak Johnson húsnæðismálaráðherra sinn.
Johnson hefur nú skipað í öll þau embætti en 25 lægra settir ráðherrar hafa sömuleiðis sagt af sér og er gert ráð fyrir að nýir ráðherrar verði skipaðir í þeirra stað í dag. Aðrir sem hafa sagt af sér voru aðstoðarráðherrar og aðrir embættismenn, þar á meðal varaformaður Íhaldsflokksins.
Munu fara fram á vantraust losi Íhaldsflokkurinn sig ekki við Johnson
Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið að Johnson þyrfti að hverfa frá án tafar og vísaði til fjölda hneykslismála Johnsons, ekki aðeins skipun Chris Pincher í embætti aðstoðarþingflokksformanns þrátt fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni, sem leiddi til fjöldaflótta úr flokknum fyrr í vikunni.
„Hann þarf að fara alveg, ekki þetta rugl um að tóra í nokkra mánuði. Hann hefur lagt lygar, svik og ringulreið á þetta land,“ sagði Starmer og bætti við að nú væri nóg komið, Johnson væri greinilega óhæfur til að gegna embættinu.
„Ef [Íhaldsflokkurinn] losar sig ekki við hann, þá munum við fara fram á atkvæðagreiðslu um vantraust, í þágu þjóðarinnar.“
Þingmenn verkamannaflokksins sóttu sömuleiðis hart að Michael Ellis, undirráðherra í forsætisráðuneytinu, í fyrirspurnartíma i morgun og lýstu yfir áhyggjum að ríkisstjórnin væri ekki starfhæf í núverandi mynd. Ellis fullyrti að svo væri.
„Við verðum að halda áfram að þjóna landinu okkar, kjósendum okkar og almenningi, fyrst og fremst. Það er skylda okkar núna að sjá til þess að fólkið í þessu landi hafi starfhæfa ríkisstjórn. Það gildir nú sem aldrei fyrr,“ sagði Ellis.