Portúgal og Sviss gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik C-riðils á EM í Englandi. Svisslendingar voru tveimur mörkum yfir eftir fimm mínútna leik.
Cuoma Sow skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Sviss með hörkuskoti rétt fyrir utan vítateig Portúgals. Markið kom strax á annari mínútu.
Það tók ekki langan tíma - fyrsta markið er komið og það var Cuoma Sow leikmaður Sviss sem það gerði - Staða þá 0-1. pic.twitter.com/ujXuin59BJ
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 9, 2022
Aðeins tæpum þremur mínútum síðar var Rahel Kiwic búinn að tvöfalda forskot Sviss eftir magnaða sendingu Ramona Bachmann úr aukaspyrnu á miðjum velli. Teixeira Pereira í marki Portúgals vissi ekki hvort hún ætti að koma eða fara til að grípa sendingu Bachmann og varð fyrir rest ekki nægilega vel staðsett þegar Kiwic stangar boltann í netið með höfðinu.
Það er bara svona - Sviss hefur skorað aftur og það eru varla 4 mín búnar af þessum leik. Núna var það Rahel Kiwic sem það gerði. pic.twitter.com/jCgO2E0KHN
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 9, 2022
Diana Gomes minnkaði muninn með miklu harðfylgi inn í vítateig Sviss eftir hornspyrnu Portúgals frá vinstri á 58. mínútu. Gomes nær frákasti í tvígang og nær að skófla boltanum yfir línuna til að gera síðasta hálftímann spennandi.
Portúgal jafnar svo metin á 65. mínútu þegar Silva kemur boltanum í netið eftir fallega fyrirgjöf Tatiana Pinto af hægri vængnum og þar við sat. Lokatölur 2-2.
Liðin tvö eru því jöfn í efstu tveimur sætum C-riðils, bæði með eitt stig eftir fyrstu umferðina. Svíþjóð og Holland mætast í hinni viðureign riðilsins seinna í dag.
Það er komið mark og núna er það Portúgal sem er að jafna leikinn í 2-2 - það var Jessica Silva sem skorar annað mark Portúgala, fyrsta mark liðsins skoraði Diana Gomes. pic.twitter.com/ni4e7yX1fE
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 9, 2022