Eftir ítarlega athugun stjórnvalda á árunum 2018 til 2020 þar sem meðal annars barst metfjöldi umsagna frá almenningi í Samráðsgátt tók ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákvörðun um að klukkan á Íslandi skyldi haldast óbreytt.
Erna Sif Arnardóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík (HR) og forstöðumaður Svefnseturs HR, segir að niðurstöður svefnrannsókna bendi eindregið til að það myndi hafa jákvæð heilsufarsleg áhrif að seinka klukkunni um eina klukkustund.
„Allar rannsóknir sem hafa verið gerðar og allir vísindamenn sem virkilega eru að vinna á þessu sviði eru að hvetja til þess að við séum á réttri klukku, það er að segja að sól sé hæst á lofti á hádegi,“ sagði Erna Sif í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
„Í millitíðinni á að setja fjármuni skilst mér í rannsóknir á svefni og að bæta svefn Íslendinga. Það hefur ekki komið fjármagn með því enn þá en við erum að vinna með Landlæknisembættinu að fræðsluátaki og búa til efni fyrir skóla og slíkt.“ Einnig verði brátt farið í fræðsluátak fyrir fólk í vaktavinnu og vinnuveitendur þeirra.
Höfðu áhyggjur af fækkun birtustunda
Fækkun birtustunda á vökutíma vó þyngst í ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem sagði að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma „hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund.“ Sömuleiðis hefur verið kallað eftir frekari rannsóknum á svefni íbúa á norðurslóðum.
„Það er alveg rétt að minni rannsóknir hafa verið gerðar á norðlægum slóðum, en það er auðvitað flókið að gera slíkar rannsóknir,“ segir Erna Sif.
„Það þarf þá að breyta klukkunni hjá hluta fólks og það var auðvitað það sem við vorum að vona að við gætum gert á Íslandi og gera það sem tilraunaverkefni. Ein hugmynd sem kom upp var að við myndum fá Vestmannaeyjar með okkur í lið og þau væru á annarri klukku þar sem þau eru á sér eyju, en við höfum ekki farið í það enn þá,“ segir Erna Sif létt í bragði.

Hún bætir við að þessa stundina þurfi rannsóknarteymi hennar við Svefnsetur HR að verja allri sinni orku í að vinna að risastóru verkefni sem skoðar kæfisvefn og hrotur Íslendinga.
En hafið þið verið í viðræðum við Eyjamenn?
„Þetta hefur eitthvað aðeins verið viðrað en bara svona óformlega. Það gæti verið gaman að gera þetta,“ segir Erna Sif. Núna leiti hún hins vegar að þátttakendum fyrir rannsóknarverkefnið Svefnbyltinguna sem hefur fengið fimmtán milljóna evra styrk, sem samsvarar rúmum tveimur milljörðum króna, úr Horizon 2020 rammaáætlun Evrópusambandsins fyrir rannsóknir og nýsköpun.
Hlusta má á viðtalið við Ernu Sif í Reykjavík síðdegis í heild sinni í spilaranum.