Talið að níu ára stúlka hafi verið stungin til bana í Boston Eiður Þór Árnason skrifar 29. júlí 2022 14:40 Miðbær Boston með St. Botolph kirkjuna í bakgrunni. Getty/Tornadoflight Grunur leikur á um að níu ára stúlka hafi verið stungin til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi. Lögreglan rannsakar málið sem hugsanlegt morð en atvikið átti sér stað klukkan 18:20 að staðartíma í gær.
Lögreglan segir að foreldrar stelpunnar hafi verið upplýstir um stöðu mála. Stóru svæði hefur verið lokað í miðbænum vegna rannsóknar málsins og stóð gagnaöflun lögreglu enn yfir í morgun. Litlar upplýsingar hafa verið veittar um árásina og liggur lítið fyrir um aðdraganda hennar. Boston er í um 160 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni London. Um 70 þúsund íbúar búa á Boston-svæðinu. Harmleikur sem hafi komið íbúum í opna skjöldu Iga Bontoft rekur ráðgjafamiðstöð í Boston og segir samfélagið vera í áfalli eftir atvikið. „Við gerðum ekki ráð fyrir að eitthvað svona geti gerst í nærumhverfi okkar. Við vitum ekki nákvæmlega hvað gerðist en dauði barns er harmleikur sama hverjar kringumstæðurnar eru,“ segir hann í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Árásin átti stað nærri St Botolph's kirkjunni sem hefur boðið fólki að kveikja á kertum til að minnast stelpunnar. Paul Skinner, forseti bæjarstjórnar Boston Borough, segist vera niðurbrotinn vegna fregna af þessu „mjög sorglega og hörmulega atviki.“ Erfitt sé að ímynda sér þann sársauka sem fjölskyldan og vinir stelpunnar séu að upplifa og yfirvöld sendi þeim hugheilar samúðarkveðjur.
Bretland England Mest lesið Myndskeiðið segi ekki alla söguna Innlent Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Innlent Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Innlent Fólk sæki um námsmannaleyfi í annarlegum tilgangi Innlent Séreignarleiðin gerð varanleg og nýtist til tíu ára Innlent „Alveg brjálaður yfir því að hann sé að hjóla á götunni“ Innlent Létu sleðaveðrið ekki fram hjá sér fara Innlent Fjórir látnir í Jamaíku og tuttugu á Haítí Erlent Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar út Innlent Vélfagsmönnum heitt í hamsi á fundi Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Fjórir látnir í Jamaíku og tuttugu á Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Ákærðir fyrir hryðjuverk gegn ísraelska sendiráðinu í Kaupmannahöfn Segja vopnahléið aftur í gildi eftir miklar árásir Fundu flöskuskeyti frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar Ódæði eftir fall El Fasher: Blóðið sýnilegt úr geimnum Rak nefndina sem átti að taka fyrir viðhafnarsalinn og sigurbogann Fjórtán drepnir í árásum á meinta fíkniefnasmyglara Þriðju kosningarnar á fjórum árum Stærsti fellibylur í sögu Jamaíka Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Ísraelsher gerir árás á Gasa Andstæðingar olíuleitar Norðmanna hrósa sigri þrátt fyrir tap Skipar hernum að gera árásir á Gasa Áfrýjar sakfellingu í þagnargreiðslumálinu Sakar Evrópu um stríðsæsingu Musk í samkeppni við Wikipedia Búast við hamförum vegna Melissu Van de Velde bannað að ferðast til Ástralíu til að keppa á heimsmeistaramótinu Segja Rússa elta almenna borgara með drónum Játar að hafa myrt Shinzo Abe Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Sjá meira