Segja hákarlanetin ekki virka og fjölda annara dýra flækjast í þeim Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2022 12:27 Samkvæmt nýlegri skýrslu flæktust 376 sjávarlífverur í netunum við strendur Nýju Suður-Wales árin 2021 til 2022. Þeirra á meðal voru 51 hákarlar sem netunum er ætlað að stoppa og 325 önnur dýr. Stephen Frink/Getty Paula Masselos, bæjarstjóri Waverley nærri Sydney, vill hætta notkun hákarlaneta við hina vinsælu Bondi strönd, þar sem hún segir netin ekki virka og vera skaðleg öðrum sjávarlífverum.
Masselos segir að þrátt fyrir notkun netanna hluta úr ári, sjáist fleiri hákarlar við ströndina og þá hafi strandgestum fjölgað. Netin eru um það bil 150 metra löng og sex metra há, og þeim er komið fyrir á um tíu metra dýpi. En, eins og fyrr segir, aðeins hluta af árinu. Masselos segir netunum ekki ætlað að vera tálmi milli hákarlana og fólks, heldur sé þeim ætlað að trufla sundmynstur dýranna. Aðeins einn hefur látist af völdum hákarlaárásar á Bondi strönd, það var árið 2009, þegar búið var að setja netin upp. Hákarlanet eru notuð við 51 strönd frá Newcastle til Wollongong í Nýju Suður Wales og hafa verið í notkun frá 1937. Dýraverndarsamtök segja þau hins vegar ekki hafa virkað eins og vonir stóðu til og þá flækist fjöldi annara dýra í netunum. Samkvæmt nýlegri skýrslu flæktust 376 sjávarlífverur í netunum við strendur Nýju Suður-Wales árin 2021 til 2022. Þeirra á meðal voru 51 hákarlar sem netunum er ætlað að stoppa, til að mynda hvítháfar og trígrisháfar, og 325 önnur dýr, þeirra á meðal 130 skötur og 40 skjaldbökur.
Ástralía Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Innlent Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Innlent Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Innlent Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Erlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Innlent Veðurviðvaranir og vegalokanir Innlent Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Innlent Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Innlent Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Innlent Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir loftárás Rússa Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Sjá meira