Barcelona átti ekki í neinum vandræðum með Sevilla í stórleik helgarinnar í spænsku úrvalsdeildinni.
Leikið var á heimavelli Sevilla en gestirnir hófu leikinn af miklum krafti og strax á 21.mínútu náði Brasilíumaðurinn Raphinha forystunni fyrir Barcelona.
Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski hefur tekið spænska boltann með trukki og hann hélt uppteknum hætti í markaskorun í kvöld og kom Börsungum í 0-2 á 36.mínútu.
Síðari hálfleikur var svo aðeins fimm mínútna gamall þegar Eric Garcia kom Börsungum í 0-3 eftir stoðsendingu frá Jules Kounde sem gekk til liðs við Barcelona frá Sevilla í sumar.
Barcelona er með tíu stig eftir fjóra leiki og með markatöluna 11-1.