Innlent

Fátt um svör eftir margra ára töf á upp­byggingu í Vestur­bugt

Heimir Már Pétursson skrifar
Samkvæmt áætlunum ættu þessi hús nú þegar að hafa verið risin. Nú er algjörlega óvíst hvenær framkvæmdir hefjast.
Samkvæmt áætlunum ættu þessi hús nú þegar að hafa verið risin. Nú er algjörlega óvíst hvenær framkvæmdir hefjast. Vísir/Kristján

Ekkert bólar á uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt á slippsvæðinu í Reykjavík þótt tilkynnt hafi verið með athöfn fyrir fimm árum að framkvæmdir ættu að hefjast innan átján mánaða. Deilur verktaka við borgina virðast tefja verkið en í vor hótaði borgarstjóri að lóðin yrði dregin til baka.

Í maí 2017 skrifuðu borgarstjóri, framkvæmdastjóri VSÓ og framkvæmdastjóri Vesturbugtar undir samkomulag um byggingu 176 íbúða í Vesturbugt og áttu framkvæmdir að hefjast haustið 2018. Ekkert hefur hins vega orðið að framkvæmdum.

Um fimmtán hús með tæplega tvö hundruð íbúðum eiga að rísa í Vesturbugt. Af þeim átti borgin að fá 74 íbúðir sem hún ætlaði síðan að deila út til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga.Vísir/Kristján

Í fréttum Stöðvar 2 hinn 17. september 2020 sagði talsmaður Kaldalóns fasteignaþróunarfélags sem er aðaleigandi Vesturbugtar að nauðsynlegt hefði verið að gera breytingar á áformunum vegna markaðsaðstæðna en framkvæmdir hæfust fljótlega. Ekkert hafði gerst tveimur árum síðar og hinn 29. apríl í vor hótaði borgarstjóri að borgin myndi kalla lóðina til baka.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gaf Kaldalóni frest út maí til að skila áætlunum um upphaf framkvæmda í Vesturbugt.Vísir/Vilhelm

„Það eru að mér skilst góð samtöl í gangi. En við höfum gefið aðilum tíma út næsta mánuðinn til að ganga frá öllu og fara af stað á þessu ári,“ sagði borgarstjóri hinn 29. apríl.

Þrír mánuðir er frá því þessi frestur borgarstjóra rann út. Fátt er um nákvæm svör frá forráðamönnum Kaldalóns en í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir Jón Þór Gunnarsson forstjóri félagsins þetta meðal annars:

„Upphaf framkvæmda er háð afgreiðslu deiliskipulags og annarra lóðaupplýsinga frá Reykjavíkurborg.“

„Vesturbugt hefur unnið að útfærslu á skipulagi í samstarfi viðReykjavíkurborg en það hefur ekki verið afgreitt innan Reykjavíkurborgar.“

„Framkvæmdir geta hafist eftir að deiliskipulag og önnur nauðsynleg skjöl eru afgreidd af hendi Reykjavíkurborgar samhliða því að leyst hefur verið úr ágreiningsatriðum er varða túlkun á einstökum ákvæðum samnings á milli Vesturbugtar og Reykjavíkurborgar.“

Í ritinu Uppbygging íbúða í borginni sem kom út í nóvember 2019 kemur skýrt fram að búið er að samþykkja deiliskipulag fyrir Vesturbugt.Vísir/Kristján

Þetta rímar ekki að fullu við það sem fram kemur í riti Reykjavíkurborgar Uppbygging íbúða í borginni frá því í nóvember 2019. Þar kemur fram að deiliskipulag Vesturbugtar hafi verið samþykkt fyrir 114 almennar íbúðir og 74 íbúðir fyrir húsnæðisfélög. Nýr lóðarhafi í stað Vesturbugtar væri Kaldalón fasteingaþróunarfélag.

Það lítur því út fyrir að Kaldalón sé ekki sátt við gildandi deiliskipulag fyrir byggingareitinn og sé að reyna að þrýsta á borgina að breyta því.

Fréttina má sjá í heild sinni hér að neðan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×