Real Madrid enn með fullt hús stiga eftir sigur í borgarslagnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. september 2022 20:59 Real Madrid er enn með fullt hús stiga eftir sigur kvöldsins. Fermin Rodriguez/Quality Sport Images/Getty Images Real Madrid er enn með fullt hús stiga í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góðan 1-2 útisigur gegn nágrönnum sínum í Atlético Madrid. Það var Rodrygo sem kom gestunum í forystu með marki á 18. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Aurelien Tchouameni áður en Federico Valverde sá til þess að Real Madrid fór með 0-2 forystu inn í hálfleikinn með marki tíu mínútum fyrir hlé. Þannig var staðan lengst af í síðari hálfleik. Varamaðurinn Mario Hermoso minnkaði þó muninn á þegar um sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það var þó ekki það eina sem Hermoso gerði eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 72. mínútu. Eftir að hafa verið inni á vellinum í rétt rúmar tíu mínútur skoraði hann þetta mark, nældi sér svo í gult spjald þremur mínútum síðar og endaði leikinn á því að næla sér í annað gult spjald og þar með rautt í upphafi uppbótartímans. Heimamenn léku því seinustu mínúturnar manni færri og gestirnir í Real Madrid tryggðu sér góðan 1-2 sigur. Real Madrid trónir því enn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 18 stig af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðurm deildarinnar. Atlético Madrid situr hins vegar í sjöunda sæti með tíu stig. Spænski boltinn